Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hæstiréttur hafnaði áfrýjunarbeiðni Jóns Þórs

Read Full Article →

Hæstiréttur hefur hafnað því að taka fyrir áfrýjunarbeiðni Jóns Þórs Dagbjartssonar. Hann var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir tilraun til að bana barnsmóður sinni. Barnsmóðir Jóns Þórs lýsti því í viðtali við RÚV hvernig hún hefði sætt ofsóknum hans mánuðum saman. Beiðni um nálgunarbann var hafnað nokkrum klukkustundum áður en hann réðst á hana og reyndi að drepa hana. Jón Þór vildi áfrýja dóminum til Hæstaréttar og sagði hann bersýnilega rangan. Hæstiréttur hafnaði því að taka áfrýjun Jóns Þórs fyrir. Dómstóllinn sagði að niðurstaða Landsréttar byggði að verulegu leyti á sönnunargildi munnlegs framburðar sem Hæstiréttur getur ekki endurskoðað. Þá töldu dómarar að það hefði ekki verulega almenna þýðingu að Hæstiréttur dæmdi um ákæruna.

Share this article