Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Inga boðar breytingar sem koma flatt upp á kennara

Read Full Article →

Kennarar gengu út undir ræðu Ingu Sæland menntamálaráðherra á þingi Kennarasambands Íslands. Ráðherra tilkynnti í ræðunni að einkunnagjöf í grunnskólum verði breytt. Formaður Kennarasambandsins sakar stjórnvöld um samráðsleysi. Ráðherra boðaði í ræðunni að einkunnagjöf í grunnskólum yrði aftur færð í tölustafi, frá því að gefa einkunnir í bókstöfum. Lokaeinkunn úr grunnskóla hefur verið gefin í bókstöfum frá árinu 2016 en var fram að því í tölustöfum. Með því að færa einkunnagjöf aftur í tölustafi segist Inga vilja mæta ákalli samfélagsins. „Ég veit að það er umdeilt í ykkar hópi en mér finnst það skipta máli að þetta er í samræmi við það sem meirihluti foreldra og samfélagið vill,“ sagði Inga. „Aðalatriðið er að námskvarðinn sé skýr fyrir bæði nemendur og foreldra.“ Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins segist hafa heyrt af þessum áformum fyrst í dag. Hann sakar ráðherra um samráðsleysi. „Menntamálaráðherra tilkynnti að hún ætlaði að breyta því námsmatskerfi sem hefur verið viðhaft við og um leið aðgöngumiði að framhaldsskólunum okkar. Og halda það að það sé hægt að skipta bara um það eins og að henda krónupeningi ber bara vott um þekkingarleysi.“ Fréttin verður uppfærð.

Share this article