Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þeir sem þurfa aðstoð í Súdan myndu fylla 3 þúsund Laugardalsvelli

  • What: Report on the humanitarian crisis in Sudan
  • Impact: Relevant to global humanitarian organizations and policymakers
Read Full Article →

Þrjú ár eru síðan blóðug borgarastyrjöld braust út í Súdan, sem ekki sér fyrir endann á. Tugmilljónir eru á flótta og þurfa mataraðstoð – í verstu mannúðarkrísu heims um þessar mundir. Tveir herforingjar hafa síðastliðin þrjú ár gleypt þetta eitt stærsta land Afríku í sig. Á milli lenda þær 50 milljónir manna, sem kalla Súdan heimkynni sín. Talið er að á bilinu 150 til 400 þúsund manns hafi verið drepnir víðs vegar um landið. Um tveir þriðju íbúa eru á flótta og að minnsta kosti 28 milljónir manna þurfa á mataraðstoð að halda. Langflestir þeirra búa við alvarlega vannæringu. Með 28 milljónum manna væri hægt að fylla báðar stúkurnar á Laugardalsvelli um þrjú þúsund sinnum. 28 milljónir manna er um 71 sinni íslenska þjóðin og er svipaður fjöldi og býr á öllum Norðurlöndum.

Share this article