Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tólf ára barn og hálffertug kona drepin í loftárás á Kyiv

Read Full Article →

Tólf ára barn og kona á fertugsaldri voru drepin og að minnsta kosti þrettán særðust í stórfelldum loftárásum Rússlandshers á úkraínsku höfuðborgina Kyiv í kvöld, samkvæmt upplýsingum borgarstjórans Vitali Klitschko. Hann segir björgunarsveitir hafa náð öðru barni undan rústum íbúðarhúss sem hrundi til grunna. Mörg hinna særðu eru heilbrigðisstarfsmenn að sögn Klitschkos. Loftvarnarflautur ómuðu um alla borg áður en háværar sprengingar kváðu þar við. Hernaðaryfirvöld hvetja borgarbúa til að halda sig í skjóli þar til hættan telst yfirstaðin. Að minnsta kosti tíu særðust, minnst einn alvarlega, í loftárásum á borgina Dnipro, miðsvæðis í Úkraínu. Karl og kona særðust í drónaárás á borgina Kharkív og fimm í hafnarborginni Odesu við Svartahaf. Rússar hafa gert nær linnulausar loftárásir að næturlagi frá upphafi innrásarstríðsins og nýverið hófu þeir atlögur að degi til einnig. Úkraínumenn hafa svarað í sömu mynt undanfarin misseri.

Share this article