Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ruby Rose sakar Katy Perry um að hafa beitt sig kynferðisofbeldi fyrir 16 árum

  • What: Celebrity accusation of sexual assault
  • Impact: Personal legal matter not related to cybersecurity
Read Full Article →

Ástralska leikkonan Ruby Rose sakar bandarísku poppstjörnuna Katy Perry um að hafa beitt sig kynferðisofbeldi á næturklúbbi í Melbourne í Ástralíu fyrir sextán árum. Perry segir ekkert hæft í ásökunum Rose sem hefur birt fjölda pósta um málið á samfélagsmiðlinum Threads. Hún segist hafa hvílt höfuð sitt í kjöltu vinar síns og að Perry hafi nuddað kynfærum sínum við andlit hennar. Rose hafi þá kastað upp yfir Perry. Margir póstanna eru ekki aðgengilegir lengur því Rose kveðst hafa komið þeim í hendur lögreglu í Viktoríuríki, sem staðfestir við Guardian að rannsókn vegna meints kynferðisbrots á næturklúbbi í Melbourne árið 2010 standi yfir. Að öðru leyti vill lögregla ekki tjá sig um málið. Ruby Rose segist áður hafa greint frá atvikinu sem skondinni lítilli fylleríissögu því hún hafi ekki áttað sig á því hvernig best væri að taka á því. Auk þess hafi hún viljað halda þessu leyndu því Perry útvegaði henni síðar vegabréfsáritun til Bandaríkjanna. „Ég var bara á þrítugsaldri þá en nú er ég orðin fertug. Það tók mig næstum tuttugu ár að segja opinberlega frá þessu,“ segir Rose. „Á sama tíma og ég er þakklát fyrir að hafa fundið hugrekki til að tala finn ég hvað áföll og kynferðisbrot taka mikinn toll.“ Talsmaður Perry segir ásakanir Rose ekki einasta algerlega úr lausu lofti gripnar heldur stórhættulegar og glannalegar lygar. Hann segir rækilega skrásett að Ruby Rose hafi iðulega borið upp alvarlegar ásakanir á hendur nafngreindu fólki sem hafi alltaf þvertekið fyrir þær. Ruby Rose er einna þekktust fyrir leik sinn í Netflix-þáttaröðinni Orange Is the New Black og Katy Perry er einhver frægasta poppstjarna heims. Meðal laga sem hún hefur komið á toppa vinsælalista má nefna I Kissed a Girl, Firework og California Gurls.

Share this article