Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fleiri eru andvíg veggjaldi en fylgjandi

Read Full Article →

Andstaða við innheimtu veggjalda til að standa straum af rekstri þjóðvega hefur aukist síðasta árið, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Á sama tíma hefur dregið úr stuðningi við slíka gjaldtöku. 43 prósent landsmanna lýsa sig mjög eða frekar andvíg veggjöldum, fjórum prósentustigum meira en á síðasta ári. Þeim sem eru fylgjandi innheimtunni hefur fækkað úr 42 prósentum í 37 prósent. Þetta er í sjötta skipti sem Maskína kannar afstöðu fólks til veggjalda. Í fimm af sex skiptum hafa andstæðingar þeirra verið fleiri en stuðningsmenn þeirra. Eina undantekningin var í fyrra þegar fylgjendum veggjalda fjölgaði mjög milli ára en andstæðingum fækkaði nokkuð. Norðlendingar eru líklegastir til að styðja innheimtu veggjalda (47 prósent) en Austlendingar, Sunnlendingar og Reykjanesmenn eru mest á móti þeim (56 prósent). Stuðningur við veggjöld er meiri en andstaða meðal fylgismanna Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar. Litlu munar á fylkingum meðal Vinstri grænna og Pírata. Líklegastir til að vera á móti eru kjósendur Flokks fólksins, Miðflokksins og Sósíalista. Reyndar mælist 100% andstaða við veggjöldin meðal Sósíalista.

Share this article