Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 16.4.2026 | 14:00 Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Ísland er til fyrirmyndar að vissu leyti í orkumálum en getur gert enn betur til að verða minna háð sviptingum erlendis eða duttlungum þjóðarleiðtoga. Samsett mynd Setja bókamerki Tengdar fréttir Orkuskipti Sólrún endurkjörin stjórnarformaður Ætluðu ekki að banna bensín- og dísilbíla 13 rafknúnir strætisvagnar á götuna Engin upplýsingaóreiða í þetta sinn Orkuöryggi gæti staðið tæpt » Fleiri tengdar fréttir Ísland er í öfundsverðri stöðu í orkumálum og þróun mála í Hormússundi hefur varpað enn meira ljósi á þá stöðu. Enn er þó verk að vinna til að Ísland geti orðið enn sjálfstæðara og skýlt sér betur fyrir sviptingum í alþjóðahagkerfinu. Þetta er meðal þess sem fram kom á opinni kynningu viðskiptagreiningar Landsvirkjunar í dag, þar sem forstöðumaðurinn Jónas Hlynur Hallgrímsson og sérfræðingurinn Egill Tómasson fóru yfir áhrif átakanna í Mið-Austurlöndum á bæði Evrópu og Ísland. Bentu þeir á að Evrópa hefði um nokkurt skeið verið háð öðrum um orku, sérstaklega hvað varðar fljótandi jarðgas og olíu. Nú sé svo komið að Evrópusambandsríkin í heild þurfi að flytja inn um 60% af sinni orkuþörf. „Ísland er í aðeins betri stöðu,“ sögðu þeir og vísuðu til jarðvarma fyrir húshitun og raforkuframleiðslu með vatnsafli og jarðvarma. „Þannig að við þurfum að flytja inn orku sem nemur um 17% af okkar orkuþörf og það er þá aðallega í formi jarðefnaeldsneytis; fyrir skipaflotann, fyrir flugvélar, fyrir bílana okkar og annað, en almennt séð í Evrópu er álfan mjög háð öðrum um orku sem setur hana í frekar viðkvæma stöðu í þessu ástandi.“ Frétt af mbl.is Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Bent var á að Ísland væri í meira skjóli en gengur og gerist á meginlandi Evrópu. Noregur stórútflytjandi Á þessu séu þó undantekningar. „Noregur er gríðarlegur orkuútflytjandi, hvort sem það er í formi raforku – geta gert það í gegnum strengi til annarra landa – eða bara með útflutningi á jarðefnaeldsneyti, við þekkjum það. Þannig að þegar allt er tekið saman þá er orkuútflutningur Noregs um svona sjöföld orkuþörf landsins. Það er ekkert smáræði.“ Bentu þeir á að þegar litið væri til helstu ríkja Evrópusambandsins þá væri Ítalía í sérflokki. Landið þurfi að reiða sig á gas til raforkuframleiðslu í um 90% klukkustunda. „Það er náttúrulega mjög hátt hlutfall. Spánn er á hinum endanum, þar þurfa þau að reiða sig á þessa dýru raforkuframleiðslu í fimmtán prósent klukkustunda og er í mun betri stöðu í rauninni.“ Þetta endurspeglist glögglega í verði á raforkumarkaði, þar sem Spánn sé nokkurn veginn í skjóli fyrir því sem Ítalía þarf að þola á sama tíma. Frétt af mbl.is Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Farið var yfir þróun raforkuverðs og gerður samanburður á opinni kynningu viðskiptagreiningar Landsvirkjunar. Lánsöm að vera frátengd meginlandinu Jónas og Egill tóku aftur fram að Ísland væri háð jarðefnaeldsneyti fyrir flug, fiskveiðar og bíla. Þá sé allur vöruinnflutningur háður jarðefnaeldsneytisverði. „Við auðvitað notum áburð í landbúnaði og verðhækkanir þar munu skila sér hérna. Og þetta ratar út í matvælaverð og þetta hefur áhrif á verðbólgu og ýmislegt. En svona að einhverju leyti þá megum við segja að afleiddu áhrifin hér, sérstaklega á orkumarkaðinn, séu mun minni heldur en víða annars staðar. Við erum alltaf með jarðvarmann, nýtum hann fyrir alla okkar húshitun nánast, 99%. Og síðan er það raforkukerfið, öll okkar raforkuframleiðsla er framleidd ýmist með vatnsafli, 70%, eða jarðvarma, um 30%, og smá vindur. Okkar raforkukerfi er síðan frátengt meginlandinu. Við erum ekki með rafstreng til Evrópu. Auðvitað samt erum við Landsvirkjun í alþjóðlegri samkeppni. Önnur orkufyrirtæki og iðnaður hér eru í samkeppni. Þannig að Ísland er í alþjóðlegri samkeppni en ekki með beina tengingu. Þannig að við getum talið okkur nokkuð lánsöm.“ Þá bentu þeir á raforkuverð heimila samkvæmt gögnum Eurostat. Þar er hagstæðasta verðið á Íslandi. „Og langtum lægra miðað við það sem við sjáum í Þýskalandi og Danmörku. Og svo er líka áhugavert að sjá bara hversu stöðugt verðið er. Miklu stöðugra heldur en hjá öðrum þjóðum. Það er ekki bara hagstæðara heldur líka stöðugt. Ef maður horfir líka út frá iðnaðarstarfsemi og atvinnustarfsemi þá er auðvitað heilmikill ávinningur í því að vera með fyrirsjáanleika.“ Hér fái orkufyrirtækin fyrirsjáanleika í sína tekjuöflun og í einangruðu raforkukerfi eins og þessu sé hægt að fara út í stórar fjárfestingar. Frétt af mbl.is „Við erum í annarri og betri stöðu en Evrópa“ Rakin var þróun í orkuinnflutningi frá aldamótum. Erum til fyrirmyndar en getum gert betur „En það er verk fyrir höndum sem snýr að orkuskiptunum og þessi sirka milljón tonn af olíu sem við flytjum inn,“ sögðu þeir og birtu graf sem sýnir þróunina frá aldamótum. „Við flytjum enn þá inn um 1,2 milljónir tonna af jarðefnaeldsneyti fyrir flugvélarnar okkar, skipin, fiskveiðarnar, alla ferðaþjónustuna, fyrir bílana okkar. Og þarna eru tækifæri til þess að gera okkur enn þá orkusjálfstæðari í rauninni. Bílavæðingin hefur náttúrulega gengið ágætlega en við getum sett meira púður í það og verður það eflaust gert núna,“ sögði þeir og bentu á viðbrögð sem þegar hafa verið kynnt við þeirri orkukrísu sem að steðjar. „En hver einasta kílógrammstund sem við náum að framleiða hér innanlands er algjörlega óháð duttlungum í þjóðarleiðtogum eða einhverjum titringi á alþjóðasviðinu. Þannig að þetta er tækifæri fyrir okkur til að gefa í og verða enn þá sjálfstæðari en við erum þó nú þegar. En að vissu leyti erum við algjörlega til fyrirmyndar og aðrar þjóðir horfa á okkur og vilja komast á þann stað sem við erum.“ Frétt af mbl.is Beint: Ræða áhrif lokunar Hormússunds á Ísland Tengdar fréttir Orkuskipti Sólrún endurkjörin stjórnarformaður Ætluðu ekki að banna bensín- og dísilbíla 13 rafknúnir strætisvagnar á götuna Engin upplýsingaóreiða í þetta sinn Orkuöryggi gæti staðið tæpt » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Lagos: Strandbær með sögu Sigurður Már Jónsson Dauðarefsingar í Miðausturlöndum Fleira áhugavert Segir engin áform um að hætta með loftbrúna Mikill meirihluti vill yfirráð auðlinda Lágar álögur og vaxandi samfélag Hækkar byggingarkostnað Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Lækka verð á hundruðum vara Þrír nýir eigendur að LEX Landsbankinn spáir 5,5% verðbólgu í apríl Ekki verður af samruna Arion og Kviku Nær 100 milljarða aukning hjá LSR Gera samning við bandarískan dýrafóðursrisa Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Traust til viðskiptabankanna eykst verulega Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Jóhann Ingi til Securitas Ekki verður af samruna Arion og Kviku Gera samning við bandarískan dýrafóðursrisa Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Fólkið verði sterkasti hlekkurinn Jóhann Ingi til Securitas Fyrrum forstjóri IKEA á velsældarþingi Traust til viðskiptabankanna eykst verulega Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Rekstrarniðurstaða Garðabæjar jákvæð um 2,8 milljarða Íslandsbanki stofnar gervigreindarfélag Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Sumarbústaðir áfram vinsælir Lækka verð á hundruðum vara 75% Íslendinga vilja nýja staði Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Laun hér þau hæstu í Evrópu Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Ekki verður af samruna Arion og Kviku Minnka flækjustigið við greiðslur Pistlar » Sigurður Már Jónsson Lagos: Strandbær með sögu Sigurður Már Jónsson Dauðarefsingar í Miðausturlöndum Fleira áhugavert Ísafjarðarflug tryggt til næstu fjögurra ára Lokaðir inni um óákveðinn tíma Vinsælum veitingastöðum lokað Engin stemning fyrir flokkshroka Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Lækka verð á hundruðum vara Þrír nýir eigendur að LEX Landsbankinn spáir 5,5% verðbólgu í apríl Ekki verður af samruna Arion og Kviku Nær 100 milljarða aukning hjá LSR Gera samning við bandarískan dýrafóðursrisa Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Traust til viðskiptabankanna eykst verulega Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Jóhann Ingi til Securitas Ekki verður af samruna Arion og Kviku Gera samning við bandarískan dýrafóðursrisa Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Fólkið verði sterkasti hlekkurinn Jóhann Ingi til Securitas Fyrrum forstjóri IKEA á velsældarþingi Traust til viðskiptabankanna eykst verulega Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Rekstrarniðurstaða Garðabæjar jákvæð um 2,8 milljarða Íslandsbanki stofnar gervigreindarfélag Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Sumarbústaðir áfram vinsælir Lækka verð á hundruðum vara 75% Íslendinga vilja nýja staði Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Laun hér þau hæstu í Evrópu Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Ekki verður af samruna Arion og Kviku Minnka flækjustigið við greiðslur

Share this article