Gengi Kviku banka lækkaði um 11% í dag en greint var frá því í gærkvöldi að samrunaviðræðum bankans og Arion banka hefði verið slitið. Hlutabréf Arion banka hækkuðu hins vegar um tæp 2,5% í viðskiptum dagsins. Viðskiptablaðið greindi frá því í gærkvöldi að ákveðið var að hætta samrunaviðræðum bankanna eftir fund með fulltrúum Samkeppniseftirlitsins þar sem ljóst var að eftirlitið myndi ekki heimila þá hagræðingu sem fulltrúar Arion og Kviku sáu fyrir sér. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins var það mat Samkeppniseftirlitsins að Kvika skipti það miklu máli fyrir samkeppni í einkabankaþjónustu, eignastýringu og útlánastarfsemi að ekki væri forsvaranlegt að samruninn næði fram að ganga á óbreyttum forsendum. Sjá einnig SKE blæs samruna Arion og Kviku af Nokkrar hækkanir voru þó í Kauphöllinni en gengi Amoraq hækkaði um 2,4% og hækkuðu hlutabréf Íslandsbanka um 1,3% í 1,4 milljarða króna viðskiptum. Hampiðjan lækkaði um 1,5% og féll gengi Eimskips sömuleiðis um 2,9%.