Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lögðu hald á rúm 30 kíló amfetamíns á Keflavíkurflugvelli

Read Full Article →

Lögreglan á Suðurnesjum vinnur að umfangsmikilli rannsókn eftir að hún lagði hald á rúm þrjátíu kíló af amfetamíni. Tvö voru handtekin og sæta gæsluvarðhaldi. Þetta kemur fram í tilkynningu. Þann 12. apríl stöðvaði tollgæslan á Keflavíkurflugvelli konu og karl við komu þeirra til landsins sem reyndust vera með fíkniefni í farangri sínum. „Rannsókn tæknideildar lögreglu leiddi í ljós að haldlögð fíkniefni reyndust vera 30,8 kg. af amfetamíni. Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði hin handteknu í gæsluvarðhald til 20. apríl nk. og mun lögreglan á Suðurnesjum leggja fram kröfu um framlengingu gæsluvarðhalds í framhaldi,“ segir í tilkynningunni. Rannsókn sé á frumstigi og lögreglan verst frekari frétta að svo stöddu.

Share this article