Uppfært kl. 22:15 eftir að úrslit lágu fyrir í leik Stjörnunnar og FH. KR vann Keflavík í fyrstu umferð 3-2 og í dag lögðu þeir Þór frá Akureyri með 5 mörkum gegn 2. Stjarnan er sömuleiðis með tvo sigra í fyrstu leikjunum. Stjarnan lagði KA fyrir norðan í fyrsta leik 3-2 og lagði svo FH í Garðabænum með sömu tölum í kvöld. Breiðablik og Víkingur eru bæði komin á sigurbraut eftir jafntefli í 1. umferð. Víkingur sótti KA heim og vann 2-0 og á sama tíma lagði Breiðablik ÍA í Kópavogi, 1-0. Þá nældu Valsmenn í sín fyrstu stig með 2-1 sigri á ÍBV að Hlíðarenda og Fram lagði Keflavík 3-1. Umferðinni lýkur í kvöld með leik Stjörnunnar og FH. Hann hefst klukkan 20:15 og verður fréttin uppfærð með úrslitum þess leiks þegar honum lýkur. Markaskorarar dagsins eru: Stjarnan-FH: 1-0 Birnir Snær Ingason 25' 1-1 Kjartan Kári Halldórsson 42' 1-2 Tómas Orri Róbertsson 60' 2-2 Guðmundur Baldvin Nökkvason 65' 3-2 Andri Rúnar Bjarnason 86' KR-Þór: 1-0 Amin Cosic 12' 2-0 Eiður Gauti Sæbjörnsson 34' 3-0 Luke Rae 51´ 4-0 Aron Sigurðarson 69' 4-1 Ingimar Arnar Kristjánsson 75' 5-1 Ástbjörn Þórðarson 80' 5-2 Isaac Atanga 90+3' Fram-Keflavík: 1-0 Vuk Óskar Dimitrijevic 11' 2-0 Vuk Óskar Dimitrijevic 49' 2-1 Eiður Orri Ragnarsson 77' 3-1 Bjarni Páll Linnet Runólfsson 90+2' Valur-ÍBV: 0-1 Felix Örn Friðriksson 21' 1-1 Lúkas Logi Heimisson 30' 2-1 Hólmar Örn Eyjólfsson 73' KA-Víkingur: 0-1 Gylfi Þór Sigurðsson 76' 0-2 Elías Már Ómarsson 87' Breiðablik-ÍA: 1-0 Höskuldur Gunnlaugsson 36'