Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO Updates RÚV

Japanir selja Áströlum hátæknivæddar freigátur

  • What: Japan delivers first submarine to Australia
  • Impact: Australia's naval fleet expands
Read Full Article →

Samkomulag náðist í morgun um að Japanir afhendi Áströlum fyrstu hátæknivæddu freigátuna af um það bil tíu sem smíðaðar verða á næsta áratug. Pat Conroy er ráðherra hernaðaruppbyggingar í Ástralíu.EPA / WILLY KURNIAWAN / POOL Þannig rúmlega tvöfaldast stórherskipafloti Ástralíu, fer úr ellefu í 26 skip. Japanska fyrirtækið Mitsubishi Heavy Industries smíðar freigáturnar sem verða þungvopnaðar og þeirrar náttúru að nær útilokað verður að greina þær á ratsjám. Japanir hafa varla gert stærri samning um hergagnasmíði frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Japönsk stjórnvöld hafa stóraukið varnarsamvinnu við önnur ríki á Kyrrahafssvæðinu vegna aukinnar útþenslu Kínverja.

Share this article