Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vettvangur: Þrjú lokuð hlið

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 18.4.2026 | 7:00 Þrjú lokuð hlið Björn Bjarnason mbl.is/Ómar Óskarsson Setja bókamerki Vettvangur | Pistill Björns Bjarnasonar úr Morgunblaðinu Utanríkisráðherra hefur ítrekað haldið því fram að „alveg skýrt“ sé um hvað verði kosið í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Þegar málið er skoðað í ljósi umsagnar landskjörstjórnar og þeirra aðstæðna sem blasa við í raun, verður hins vegar vart komist að annarri niðurstöðu en að þessi fullyrðing standist ekki. Vandinn er þríþættur. Hann snýr að grundvallarforsendum sem hafa verður að leiðarljósi þegar kjósendur eru kallaðir að kjörborðinu til að taka afstöðu til ákveðins málefnis. Í fyrsta lagi er spurningin sem lögð er fyrir kjósendur gölluð. Farið er fram á að þeir taki afstöðu til þess hvort halda eigi „áfram viðræðum“ við Evrópusambandið. Um þetta orðalag segir landskjörstjórn í umsögn til utanríkismálanefndar alþingis 10. apríl að ekki verði undan því vikist að benda á að með orðalagi spurningarinnar sé gengið út frá ákveðinni forsendu sem ekki sé almennt óumdeild. Þetta geti haft áhrif á afstöðu kjósenda og vakið tortryggni. Þetta er kjarni málsins. Þjóðaratkvæðagreiðslu verður að reisa á sameiginlegum skilningi á því sem um er spurt. Ef hluti kjósenda telur spurninguna rangt framsetta eða reista á misskilningi kann hún sjálf að móta afstöðu kjósandans. Reynslan kennir að skortur á skýrleika leiðir ekki til lausnar heldur óvissu. Árið 2001 var efnt til ráðgefandi atkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Niðurstaðan var naum og túlkun hennar umdeild. Stóra vandamálið var hins vegar að það skorti forsendur fyrir atkvæðagreiðslunni. Enginn raunhæfur nýr kostur lá fyrir, engin skýr hugmynd um nýjan flugvöll. Það var ekki einu sinni ljóst hver ætti að taka endanlega ákvörðun um hann. Kosið var á milli þess sem var (og er enn 25 árum síðar) og einhvers tómarúms. Atkvæðagreiðslan 2001 hefur verið tekin sem skólabókardæmi um hvernig ekki eigi að standa að þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er einmitt sama hætta sem blasir við núna vegna þess sem ætlunin er að kjósa um 29. ágúst. Í öðru lagi er ytri veruleikinn nefnilega sá að íslensk stjórnvöld ráða ekki ein framhaldi ESB-viðræðna. Í málflutningi ráðherra er gengið út frá því að vilji Íslendinga ráði hvort viðræðum við Evrópusambandið verði fram haldið. Það er einföldun sem stenst ekki. Allar viðræður um aðild eru háðar einróma ákvörðun í leiðtogaráði ESB. Þar er nú tregða og jafnvel ótti við frekari stækkun sambandsins. Leiðtogar margra ESB-ríkja telja að bara umræðan um inngöngu nýrra ríkja verði vatn á myllu popúlistahreyfinga og þeim pólitískt dýrkeypt á heimavelli. Ekkert ríki hefur gengið í sambandið síðan 2013 og ríkjum sem hafa verið árum saman á stækkunarlistanum, þar sem Ísland er ekki, er haldið í biðstöðu og óvissu. Sérstakur hraði við afgreiðslu vegna Íslands er ósennilegur á sama tíma og óskum Úkraínustjórnar um skjóta úrlausn er hafnað. Þetta er ekki jaðaratriði heldur lykilforsenda miðað við fullyrðingar utanríkisráðherra um að nú sé „opinn gluggi“ fyrir Ísland inn í ESB. Hvernig er það rökstutt í ljósi stöðunnar í leiðtogaráðinu? Að leggja fyrir þjóðina spurningu um „framhald viðræðna“ án þess að gera henni grein fyrir því að slíkt framhald er háð vilja annarra ríkja felur í sér loforð um afstöðu annarra sem ekkert segir að verði efnt. Það liggur ekkert fyrir opinberlega um skoðanir innan leiðtogaráðsins á viðræðum við Íslendinga. Þetta líkist stöðunni þegar gengið var til atkvæða um framtíð Reykjavíkurflugvallar árið 2001. Þá var tekist á um mál sem Reykjavíkurborg hafði ekki á valdi sínu. Hér er spurt um ferli sem ríkisstjórn Íslands stjórnar ekki. Í þriðja lagi er staðan sú hér að stjórnarskráin lokar leiðinni. Aðild að Evrópusambandinu felur í sér framsal ríkisvalds til yfirþjóðlegs valds. Til þess kemur ekki nema með breytingu á stjórnarskránni. Breytingarferlið er ekki einfalt: krafist er samþykkis tveggja þinga og kosninga á milli. Engin breytingarvinna er hafin, engin áætlun um hana liggur fyrir og engin pólitísk sátt er sýnileg. Þarna ætlar ríkisstjórnin að leiða þjóðina í öngstræti. Með þjóðaratkvæðagreiðslu vilja stjórnvöld fá pólitískt umboð til að halda áfram viðræðum. Án stjórnarskrárbreytinga verður þó engu aðildarferli lokið. Umboð til einhvers sem ekki er hægt að framkvæma kallar aðeins á óvissu og vonbrigði. Þetta er grundvallaratriði sem ekki verður undan vikist. Þegar þessi þrjú atriði eru skoðuð saman blasir við skýr vandi. Spurningin sem lögð er fyrir kjósendur er ekki reist á óumdeildum forsendum. Sú leið sem vísað er til ræðst ekki af ákvörðun Íslendinga einna. Niðurstaðan sem ríkisstjórnin stefnir að er ekki framkvæmanleg innan gildandi stjórnskipunar. Þjóðaratkvæðagreiðsla af þessum toga er því ekki tæki til að skýra vilja þjóðarinnar heldur kallar hún á þá hættu að djúpstæður ágreiningur festist í sessi. Við höfum kynnst öllum deilunum sem hafa orðið vegna ófullburða atkvæðagreiðslunnar 2001. Misráðin þjóðaratkvæðagreiðsla um „nýju stjórnarskrána“ árið 2012 hefur valdið áralöngum ágreiningi. Við þurfum ekki fleiri lík misheppnaðra lýðræðisæfinga í lestina. Þingmanna bíður nú það verkefni að búa þannig um hnútana vegna ESB-þjóðaratkvæðagreiðslunnar að hún klúðrist ekki fyrir fram vegna lélegs undirbúnings. Það er alvarlegt að þetta meginmál ríkisstjórnarinnar skuli lagt fyrir á óviðunandi hátt. Landskjörstjórn hefur bent á þessa annmarka og veitt þinginu mikilvæga leiðsögn. Hana verður að taka alvarlega. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Allt að 10 stiga hiti Vettvangur: Þrjú lokuð hlið Cecilía Rán með ákall til Íslendinga Rúnar tekur við eldhúsinu á Hótel Holti „Klíkuskapurinn byrjaði fyrir 43 árum“ Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Veruleg skerðing á bílastæðum Tvö gripin með rúm 30 kíló af amfetamíni Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur „Erum ennþá í pólitík,“ segir Kristrún Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Þura þorði aldrei að kalla sig söngkonu Guðmundur Ingi færir sig um set X26: Húsfyllir og heitar umræður Agabrot flugstjórans ólíðandi Tvö gripin með rúm 30 kíló af amfetamíni „Þá værum við að ljúga að þjóðinni“ Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Allt að 10 stiga hiti Vettvangur: Þrjú lokuð hlið Cecilía Rán með ákall til Íslendinga Rúnar tekur við eldhúsinu á Hótel Holti „Klíkuskapurinn byrjaði fyrir 43 árum“ Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við eigum hérna frábært hús á frábærum stað og sagan er djúp“ Sigmundur Davíð lét ekki segjast Vill snúa við „óheillaþróun“ á námsárangri barna „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Þura þorði aldrei að kalla sig söngkonu Guðmundur Ingi færir sig um set X26: Húsfyllir og heitar umræður Agabrot flugstjórans ólíðandi Tvö gripin með rúm 30 kíló af amfetamíni „Þá værum við að ljúga að þjóðinni“ Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá

Share this article