Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til hafnar í Reykjavík síðastliðinn fimmtudaginn. Það var AIDA Sol sem lagði að bryggju við Skarfabakka í Reykjavíkurhöfn. Um borð eru 2.317 farþegar og héðan siglir skipið áfram til Ísafjarðar, Akureyrar og Seyðisfjarðar áður en það yfirgefur íslenska lögsögu. Búist er við alls 301.567 ferðamönnum til Reykjavíkur í vor, sumar og haust með skemmtiferðaskipum. Ríflega helmingur farþega, 164.785 eða 54,6% af heildarfjöldanum, eru skiptifarþegar sem hefja eða ljúka för sinni með skemmtiferðaskipum á Íslandi. Í frétt á vef Faxaflóahafna segir að Faxaflóahafnir hafi unnið markvisst að því að fjölga þessum hópi farþega, sem dvelur lengur á landinu og skapar aukin verðmæti fyrir íslenskt efnahagslíf. Bókaðar eru 221 skipakomur til Faxaflóahafna í ár, 18 færri en árið 2025, og eru 155 af þeim í farþegaskiptum. Pacific World er skipið sem lokar vertíð skemmtiferðaskipa í Reykjavík þetta árið en það leggst að bryggju þann 11. október. Metfjöldi farþega, rúmlega 330.000, heimsótti hafnir Faxaflóhafna yfir vertíð skemmtiferðaskipa í fyrra þar sem hlutfall skiptifarþega jókst um 15% frá árinu á undan. Sjá hér .