Austurríska lögreglan hefur hrint af stað rannsókn eftir að rottueitur fannst í krukku af ungbarnamat frá þýska fyrirtækinu HiPP. Fyrirtækið innkallaði gulrótamauk úr rúmlega 1.500 verslunum á föstudag. Yfirvöld lögðu hald á vörur í Tékklandi, Slóvakíu og héraði í austanverðu Austurríki og sendu til rannsóknar. Þýska lögreglan tekur einnig þátt í rannsókninni. Í yfirlýsingu austurrísku lögreglunnar segir að rannsókn á innihaldi einnar krukku í gær hafi staðfest að í henni væri rottueitur. Matvælastofnun landsins sagði í gær að eitrinu hefði líklega verið komið fyrir vísvitandi. Grunur léki á að atvikið tengdist tilraun til fjárkúgunar. HiPP varaði viðskiptavini við því að það gæti verið lífshættulegt að neyta vörunnar. Ekki er vitað til þess að fólk hafi veikst í tengslum við málið og að sögn HiPP nær það ekki til fleiri ríkja en þeirra fyrrgreindu.
This article describes a deliberate contamination incident involving rodent poison found in jars of HiPP baby food in Austria, the Czech Republic, and Slovakia, suspected to be an act of extortion. The attack vector is physical product tampering, with the contaminated product being recalled from over 1,500 stores. No technical vulnerability, CVSS score, software versions, or patches are applicable to this physical supply chain threat.