Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hvorki Pósturinn né eftirlit farið að lögum

Read Full Article →

Viðskipti | Morgunblaðið | 19.4.2026 | 14:47 | Uppfært 15:38 Hvorki Pósturinn né eftirlit farið að lögum FA telur Íslandspóst ekki eiga rétt á umþrættu ríkisframlagi. mbl.is/Karítas Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Íslandspóstur Framtíð Íslandspósts liggur fyrir 581 milljón króna hagnaður hjá Póstinum Segir Póstinn stunda undirverðlagningu Gríðarlegar verðhækkanir Póstsins Telja stuðning í samræmi við EES-samning » Fleiri tengdar fréttir Félag atvinnurekenda (FA) hefur sent Byggðastofnun erindi vegna óskar Íslandspósts um að fá enn hærra framlag úr ríkissjóði en lög gera ráð fyrir. FA færir fyrir því rök í erindi sínu að hvorki Íslandspóstur né Byggðastofnun hafi farið að lögum, en Byggðastofnun fer með eftirlit póstþjónustu á Íslandi. Byggðastofnun ákvað fyrr á árinu að Íslandspóstur fengi tæpar 800 milljónir króna úr ríkissjóði vegna alþjónustubyrðar á síðasta ári og hefur framlagið hækkað skarpt ár frá ári. Í skýrslu stjórnar og forstjóra með ársreikningi Íslandspósts, sem opinberaður var í síðasta mánuði, kemur fram að Íslandspóstur hafi farið þess á leit við eftirlitsaðilann að fá viðbótarframlag á yfirstandandi ári vegna erlendra sendinga, sem Íslandspóstur kveður að séu fyrirtækinu mikil byrði. „Samningur [r]íkisins við alþjóða póstsamfélagið kveður á um að félagið skuli dreifa öllum sendingum sem koma erlendis frá. Ekki fylgir þessum skyldum endurgreiðsla frá ríkinu en dreifing óskráðra bréfa sem koma erlendis frá [er] mikil byrði fyrir félagið. Óskaði félagið eftir því við eftirlitsaðilann að fá það bætt fyrir rekstrarárið 2026 en því erindi er ósvarað,“ segir í fyrrnefndri skýrslu. Í erindi FA, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, lýsir félagið furðu yfir því að Byggðastofnun hafi ekki svarað erindi Íslandspósts. „Svarið ætti að liggja í augum uppi og vera fljótafgreitt,“ segir í erindi FA. FA segir skýrt í póstlögum að Íslandspóstur geti ekki krafist fjárframlaga vegna taps á erlendum sendingum, en í þeim er beinlínis kveðið á um að alþjónustuveitandi geti ekki farið þess á leit að honum verði með fjárframlögum tryggt endurgjald fyrir þjónustu vegna erlendra póstsendinga. Lög leyfa ekki tap Í erindi FA er það rifjað upp þegar gerð var breyting á þágildandi póstlögum árið 2019, með lögum nr. 23/2019, en þar var Íslandspósti heimilað að setja gjaldskrá fyrir erlendar póstsendingar, sem mætti raunkostnaði við sendingarnar. Skýrt hafi verið kveðið á um að íslensk póstlög gengju framar alþjóðaskuldbindingum á sviði póstmála og taka bæri mið af óbættum raunkostnaði við gjaldtöku erlendra póstsendinga. Bent er á að ef rétt sé að Íslandspóstur tapi háum fjárhæðum á dreifingu erlendra bréfa hafi fyrirtækið ekki farið að því ákvæði póstlaganna að gjaldskrár fyrir alþjónustu, þar á meðal gjaldskrár vegna erlendra póstsendinga, skuli taka mið af raunkostnaði við að veita þjónustuna að viðbættum hæfilegum hagnaði. Með öðrum orðum: Íslandspósti hafi borið lagaleg skylda til þess að haga verðlagningu erlendra sendinga þannig að hún dekkaði kostnað að viðbættum hæfilegum hagnaði. Þannig ætti ekki að geta verið tap af þjónustunni og enn síður heimild fyrir því að Íslandspóstur sæktist eftir framlagi úr ríkissjóði til að dekka tapið. Þá hafi Byggðastofnun ekki heldur rækt eftirlitshlutverk sitt eins og lög gera ráð fyrir, sem felst m.a. í því að gaumgæfa það fyrir fram að gjaldskrá vegna erlendra póstsendinga taki mið af óbættum raunkostnaði. Gögn og vörur Í erindi FA er jafnframt vísað til svara Þórhildar Ólafar Helgadóttur forstjóra Íslandspósts við spurningum Morgunblaðsins sem blaðið fjallaði um 4. apríl sl. Þar er bent á að forstjórinn segi að óskráð bréf séu „bréf sem innihaldi gögn en ekki vörur“. Spurningu blaðsins um það hvers vegna Íslandspóstur leggi ekki sérstakt gjald á erlendar bréfasendingar, í samræmi við það sem lög um póstþjónustu heimila, hafi forstjórinn svarað á þá leið að „sendingargjald sé lagt á erlendar bréfasendingar sem innihalda vörur“. FA segir það ekki eiga að fara á milli mála þegar rýnt er í póstlög og lögskýringar með þeim að vilji löggjafans hafi verið sá að ákvæðið um gjaldskrá tæki til allra erlendra póstsendinga, hvort sem þær eru bréf eða pakkar og hvort sem þær innihalda vörur eða „gögn“. Einnig vakti það athygli félagsins að Þórhildur hafi neitað að svara spurningum blaðsins um hvaðan þær sendingar kæmu sem yllu hinni þungu byrði fyrir fyrirtækið. Sömuleiðis að hún hafi aukinheldur ekki viljað tilgreina hvert magn hinna erlendu sendinga væri sem orsökuðu hið mikla tap. „Ekki verður hjá því komist að gera athugasemd við að slíkar upplýsingar þoli ekki dagsljósið. Þá skal það ítrekað að mikilvægt er að fjármunir skattgreiðenda séu ekki, með ólögmætum hætti, nýttir til að fjármagna sókn Íslandspósts á samkeppnismarkaði með undirverðlagningu og tilheyrandi taprekstri. Þar þjónar Byggðastofnun þýðingarmiklu hlutverki, enda er henni falið eftirlit með samkeppni á póstmarkaðnum,“ segir í erindinu. Óskar FA eftir svörum frá Byggðastofnun um stöðu beiðnar Íslandspósts um frekari framlög, hvenær henni verði svarað og hvernig stofnunin hagi eftirliti sínu með gjaldskrá Íslandspósts um erlendar sendingar. Kvartað til ESA Flýtimeðferð Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur sett kvörtun FA vegna ólögmætra ríkisstyrkja til Íslandspósts í forgang. Í bréfi sem FA barst þar um kemur fram að ESA forgangsraði erindum með tilliti til almannahagsmuna. Í samræmi við það hefur kvörtun FA verið flokkuð sem forgangsmál en það þýðir að svars sé að vænta innan 12 mánaða. ESA hafði áður farið fram á viðbrögð frá íslenska ríkinu við kvörtuninni og veitt til þess frest til 9. mars sl. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Íslandspóstur Framtíð Íslandspósts liggur fyrir 581 milljón króna hagnaður hjá Póstinum Segir Póstinn stunda undirverðlagningu Gríðarlegar verðhækkanir Póstsins Telja stuðning í samræmi við EES-samning » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Pistlar » Sigurður Már Jónsson Magga Stína fór aldrei til Súdan Sigurður Már Jónsson Lagos: Strandbær með sögu Fleira áhugavert Veruleg skerðing á bílastæðum Skólalóðin drullusvað og óboðleg nemendum 300 ferðir á spítalann Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Vonbrigði og kom á óvart Hvorki Pósturinn né eftirlit farið að lögum Húðvörur velta milljörðum Taka þarf mið af heildaráhrifum 4,6 milljarða samningur Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Runólfur ráðinn forstjóri Tekjur Dranga 40 milljarðar Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Miðgildi launa viðskipta- og hagfræðinga 1,3 milljónir Húðvörur velta milljörðum Samkeppniseftirlitið ógildir samruna 4,6 milljarða samningur Runólfur ráðinn forstjóri Tekjur Dranga 40 milljarðar Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Lækka verð á hundruðum vara Miðgildi launa viðskipta- og hagfræðinga 1,3 milljónir Þrír nýir eigendur að LEX Lækka verð á hundruðum vara Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Sumarbústaðir áfram vinsælir Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Runólfur ráðinn forstjóri Ekki verður af samruna Arion og Kviku Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Þrír nýir eigendur að LEX Pistlar » Sigurður Már Jónsson Magga Stína fór aldrei til Súdan Sigurður Már Jónsson Lagos: Strandbær með sögu Fleira áhugavert Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna Uppgangur samfélags í þjóðbraut Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Vonbrigði og kom á óvart Hvorki Pósturinn né eftirlit farið að lögum Húðvörur velta milljörðum Taka þarf mið af heildaráhrifum 4,6 milljarða samningur Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Runólfur ráðinn forstjóri Tekjur Dranga 40 milljarðar Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Miðgildi launa viðskipta- og hagfræðinga 1,3 milljónir Húðvörur velta milljörðum Samkeppniseftirlitið ógildir samruna 4,6 milljarða samningur Runólfur ráðinn forstjóri Tekjur Dranga 40 milljarðar Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Lækka verð á hundruðum vara Miðgildi launa viðskipta- og hagfræðinga 1,3 milljónir Þrír nýir eigendur að LEX Lækka verð á hundruðum vara Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Sumarbústaðir áfram vinsælir Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Runólfur ráðinn forstjóri Ekki verður af samruna Arion og Kviku Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Þrír nýir eigendur að LEX

Share this article