Tveimur úkraínskum lögreglumönnum hefur verið vikið tímabundið úr starfi vegna gruns um að þeir hafi flúið vettvang skotárásar í höfuðborginni Kyiv í gær. Sex voru skotnir til bana og fimmtán til viðbótar eru særðir, þar af eru níu enn á sjúkrahúsi. Lögreglumenn felldu árásarmanninn á vettvangi. Úkraínskir fjölmiðlar birtu myndskeið þar sem einkennisklæddir lögreglumenn virtust taka til fótanna þegar skothvellir glumdu. Igor Klymenko innanríkisráðherra Úkraínu segir framferði þeirra vera til skammar. „Svívirðileg og ósæmileg hegðun. Þetta er öllu kerfinu til skammar,“ sagði Klymenko í færslu á Telegram. Hann hvatti fólk til að dæma ekki lögreglustéttina í heild út frá gjörðum tveggja starfsmanna. Árásarmaðurinn var 58 ára karlmaður frá Moskvu. Tilefni árásarinnar liggur ekki fyrir en Ruslan Kravchenko ríkissaksóknari segir að hún sé rannsökuð sem hryðjuverkaárás.
This article describes a real-world security incident involving two Ukrainian police officers suspected of fleeing the scene of a terrorist shooting attack in Kyiv, rather than a technical vulnerability or software threat. The attack vector was an armed assault by a 58-year-old man from Moscow, resulting in six fatalities and fifteen injuries. No technical vulnerability details, CVSS score, affected software versions, patches, or workarounds are provided in the source material.