Innlent | mbl | 20.4.2026 | 20:28 Ljúfsárt að kveðja þingið Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. mbl.is/Hákon Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Árni tekur sæti Þórdísar: „Þetta verður gaman“ Tókust á um ESB: „Ég kalla þetta þvælu“ Guðmundur Ingi færir sig um set Málið komið fram á fölskum forsendum Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá » Fleiri tengdar fréttir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, verðandi sendiherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ljúfsárt að kveðja Alþingi eftir tíu ára þingsetu. Tilkynnt var um skipan Þórdísar í embætti sendiherra í dag og mun hún segja af sér þingmennsku samhliða nýju starfi. Gert er ráð fyrir að hún taki við embætti sendiherra 1. ágúst. Þórdís mun sitja á þingi út vikuna og í kjölfarið tekur Árni Helgason, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, þingsæti hennar. Í samtali við mbl.is segir Þórdís að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafi leitað til hennar fyrir ekki svo löngu og spurt hvort hún væri tilbúin til að taka að sér sendiherrastöðu. Þórdís gaf Þorgerði svar fyrir helgi og gengið var frá skipuninni í dag eftir að hafa farið í formlegt ferli. „Þetta er auðvitað stór ákvörðun sem ég hugsaði um og komst að þeirri niðurstöðu að ég gæti gert meira gagn fyrir Ísland og íslenska hagsmuni með því að stíga þetta skref, sem er auðvitað bara tímabundið, “ segir Þórdís en skipunin er til fimm ára. Frétt af mbl.is Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hafði áhrif á ákvörðunina Enn er beðið eftir samþykki stjórnvalda í gistiríkinu og segist Þórdís ekki geta gefið upp hvar hún muni gegna embætti sendiherra fyrr en það liggur fyrir. Hún segir það hafa haft áhrif á ákvörðun hennar hvert ríkið sé. „Það að það sé lykilríki í tvíhliða samskiptum og sömuleiðis lykilríki í viðfangsefnum á næstu misserum þar sem auðvitað eru öll hin hefðbundnu störf sendiherra og sendiráðs. En í mínum huga liggur nokkuð ljóst fyrir að áhersla á öryggis- og varnarmál verður meiri en ekki minni og ég tek því bara mjög alvarlega og trúi því að mín reynsla, þekking og tengslanet muni þar verða að gagni fyrir Ísland og íslenska hagsmuni,“ segir Þórdís. Frétt af mbl.is Árni tekur sæti Þórdísar: „Þetta verður gaman“ Segir ekki skilið við flokkinn Eins og áður segir hefur Þórdís setið á Alþingi í tíu ár. Hún segir sérstakt að kveðja Alþingi eftir svona langt starf þó að hún telji ákvörðunina vera rétta. „En ég er líka að þakka fyrir mig í bili. Ég er ekki orðin fertug þannig að ég veit ekki hvað tekur við að þessum tíma liðnum. Ég einhendi mér í þetta og er mjög spennt og auðmjúk gagnvart þessu verkefni. Þetta er auðvitað nýtt hlutverk,“ segir Þórdís. Aðspurð segist hún ekki vera að segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn. Tengdar fréttir Alþingi Árni tekur sæti Þórdísar: „Þetta verður gaman“ Tókust á um ESB: „Ég kalla þetta þvælu“ Guðmundur Ingi færir sig um set Málið komið fram á fölskum forsendum Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Forstjóraskipti hjá Apple Öruggt hjá meisturunum í fyrsta leik Mikilvægt stig fyrir Albert Stórt verkefni fyrir 29 ára strák Ljúfsárt að kveðja þingið Umræðan Einföld borg er ódýrari fyrir þig Var umsóknin um aðild að ESB í samræmi við umboð Alþingis? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ljúfsárt að kveðja þingið „Flestir sammála um að orðalagið sé óskýrt“ Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Mest lesið Í gær Í vikunni Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Óska eftir launalausum liðsauka Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Iðrast eftir óhöpp og slysfarir Hitinn gæti náð 14 stigum Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fólk þurfi að vera hrætt Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra Kirkjan verður af háum fjárhæðum Pétur vill rauða dregilinn út Flugvél hvolfdi í lendingu Jón komst í gegn en Trump ekki „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Kíkti í dagbækur vinkvennanna Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Nýjast á mbl.is » Forstjóraskipti hjá Apple Öruggt hjá meisturunum í fyrsta leik Mikilvægt stig fyrir Albert Stórt verkefni fyrir 29 ára strák Ljúfsárt að kveðja þingið Umræðan Einföld borg er ódýrari fyrir þig Var umsóknin um aðild að ESB í samræmi við umboð Alþingis? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ljúfsárt að kveðja þingið Segja Rússa hafa hótað Þýskalandi Tókust á um ESB: „Ég kalla þetta þvælu“ Segjast ekki áforma friðarviðræður við Bandaríkin Mest lesið Í gær Í vikunni Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Óska eftir launalausum liðsauka Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Iðrast eftir óhöpp og slysfarir Hitinn gæti náð 14 stigum Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fólk þurfi að vera hrætt Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra Kirkjan verður af háum fjárhæðum Pétur vill rauða dregilinn út Flugvél hvolfdi í lendingu Jón komst í gegn en Trump ekki „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Kíkti í dagbækur vinkvennanna Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi