Innlent | Morgunblaðið | 21.4.2026 | 6:00 Veiðar á langreyði áformaðar í sumar Hvalur hf. áformar að veiða langreyði í sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Hvalveiðar Hvalur gerir athugasemdir við frumvarp Sakfelldar fyrir mótmæli í hvalveiðiskipum Aðalmeðferð í máli starfsmanna sem vilja laun Verkefni Hvals að sýna fram á tjón Segir brotavilja ráðherra einbeittan » Fleiri tengdar fréttir Hvalur hf. áformar að veiða langreyði í sumar en ekkert bólar enn á veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um langreyði. Ætlunin var að hún yrði kunngjörð um miðjan þennan mánuð í síðasta lagi, en skv. upplýsingum Morgunblaðsins var stofnunin beðin að hinkra með ráðgjöfina. Hún mun þó væntanleg í dag eða á morgun. „Undirbúningur er kominn á fullt og skipin á leið í slipp í næstu viku. Veiðiráðgjöf Hafró liggur ekki ennþá fyrir mér vitandi, en hlýtur að vera á næsta leiti,“ segir Kristján Loftsson framkvæmdastjóri Hvals hf. í samtali við Morgunblaðið. „Það er reyndar óheppilegt að hún liggi ekki ennþá fyrir, enda ráðgjöfin liður í því að við getum skipulagt atvinnustarfsemi okkar. Reynist veiðiheimildir sem ráðuneytið gefur út minni en áður kann það að leiða til þess að einungis sé hægt að gera út eitt skip til hvalveiða. Það þýðir að Hvalur hf. mun ráða til vinnu um 50 færri starfsmenn í sumar,“ segir Kristján. Í veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar fyrir árin 2018-2025 var lagt til að heimilt yrði að veiða 161 langreyði árlega á svæðinu Austur-Grænland/Vestur-Ísland. Heildarkvótinn fyrir þessi átta ár var því 1.288 dýr á umræddu svæði. Hvalur hf. hélt þó ekki úti skipum til veiða öll árin. Árið 2018 voru veidd 146 dýr, árið 2022 var veiðin 148 dýr og á hinni stuttu vertíð síðsumars 2023 voru 24 dýr veidd. Heildarveiðin þessi þrjú sumur var því 318 dýr sem jafngildir 24,7% af heildarkvótanum á tímabilinu 2018-2025. Í ráðgjöfinni fyrir árin 2018-2025, sem gefin var út um miðjan júní 2017, þ.e. með árs fyrirvara, segir að langreyði hafi fjölgað jafnt og þétt við Ísland allt frá upphafi hvalatalninga árið 1987. Segir þar að fjöldi langreyða í talningu 2015, sem er hvalatalningin sem ráðgjöfin byggðist á, hafi verið sá mesti frá því talningar hófust. Samkvæmt heimildum blaðsins er ekki að vænta mikilla breytinga á ráðgjöfinni sem von er á frá þeirri síðustu enda voru mun færri hvalir veiddir á því tímabili en ráðlagt var. Í desember 2024 gaf þáverandi matvælaráðherra út leyfi til veiða á langreyðum til fimm ára sem framlengist um eitt ár árlega. Í tilkynningu frá matvælaráðuneytinu um útgáfu veiðileyfisins kom fram að leyfilegur hámarksafli á langreyði skuli fylgja veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Tengdar fréttir Hvalveiðar Hvalur gerir athugasemdir við frumvarp Sakfelldar fyrir mótmæli í hvalveiðiskipum Aðalmeðferð í máli starfsmanna sem vilja laun Verkefni Hvals að sýna fram á tjón Segir brotavilja ráðherra einbeittan » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Bongóblíða víða um land Veiðar á langreyði áformaðar í sumar Andlát: Birgir Valur Ágústsson Leynivopn Ingu Sæland og Ragnars Þórs selur íbúð með palli Lenti í mjög óhugnalegum uppákomum á Ítalíu Umræðan Homo Reykjavicus Strætó nægir að vera við stýrið – seljum vagna og rekstur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stórfelld líkamsárás á Akureyri: Tveimur sleppt úr haldi Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Viðgerð í Kópavogi að ljúka „Innflutt verðbólga er í raun mjög lítil“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Opið lengur í sundlauginni Trúir að framkvæmdir hefjist á næsta ári Gunnar kjörinn formaður Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Ákærður fyrir nauðgun Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils X26: Tvísýn barátta í Rangárþingi ytra Nýjast á mbl.is » Bongóblíða víða um land Veiðar á langreyði áformaðar í sumar Andlát: Birgir Valur Ágústsson Leynivopn Ingu Sæland og Ragnars Þórs selur íbúð með palli Lenti í mjög óhugnalegum uppákomum á Ítalíu Umræðan Homo Reykjavicus Strætó nægir að vera við stýrið – seljum vagna og rekstur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segja Rússa hafa hótað Þýskalandi Óljósir samningar um aðlögun „Innflutt verðbólga er í raun mjög lítil“ Ljúfsárt að kveðja þingið Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Opið lengur í sundlauginni Trúir að framkvæmdir hefjist á næsta ári Gunnar kjörinn formaður Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Ákærður fyrir nauðgun Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils X26: Tvísýn barátta í Rangárþingi ytra