- What: Land erosion is threatening infrastructure at Reynisfjara beach.
- Impact: The erosion is impacting the viewing platform and surrounding areas.
Innlent | mbl | 10.2.2026 | 15:55 | Uppfært 16:13 Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar „Við tókum þá ákvörðun í gær að reyna að verja innviði og þá fyrst og fremst útsýnispallinn,“ segir Íris Guðnadóttir í Þórisholti í Mýrdal í samtali við mbl.is um aðgerðir landeigenda við Reynisfjöru til að stemma stigu við afleiðingum gríðarlegs landrofs í fjörunni sem Morgunblaðið og mbl.is hafa fjallað um frá því um helgina. Á laugardaginn náði mbl.is tali af Guðna Einarssyni, föður Írisar, sem lýsti ofurkrafti náttúruaflanna í fjörunni og sagði af því hvernig miklir grjóthnullungar hefðu verið sem dúnhnoðrar í greipum ægis. „Í vetur hefur tiltölulega lítil fjara verið við Reynisfjallið og núna í vikunni fór að grafa úr þarna upp við það og mikill sandur farinn, stuðlabergið er komið bara út í sjó og hefur grafið alveg inn að útsýnispallinum auk þess sem sjórinn hefur kastað grjótinu vestur á fjörurnar,“ sagði Guðni frá sem tilheyrir sjötta ættlið ábúenda í Þórisholti. Frétt af mbl.is Landrof í Reynisfjöru vekur athygli Þungavigtarvinnuvél á ferð í fjörunni eftir að landeigendur gripu til aðgerða gegn „bölsins brimi“ eins og einmitt segir í þýðingu Helga Hálfdanarsonar á Hamlet og á vel við í Reynisfjöru nú um stundir. mbl.is/Jónas Erlendsson Sjöundi ættliðurinn við búskap Íris og bræður hennar þrír eru þar með sjöundi ættliðurinn sem þar er við búskap, nú við blómlega gulrófnarækt auk þess sem þau reka Neyðarþjónustuna Vík, sólarhringsneyðarþjónustu fyrir bifreiðar sem verða fyrir skakkaföllum á svæðinu, að ógleymdum veitingastaðnum Svörtu fjörunni ásamt ábúendum í Reyni og á Lækjarbakka. Slíkt athafnafólk vílar auðvitað ekki fyrir sér að koma mannvirkjum í Reynisfjöru til bjargar enda eigendur landsins og rennur því blóðið til skyldunnar. „Við tókum þá ákvörðun að taka upp þetta blágrýti sem sjórinn hefur kastað vestur á fjöruna og fengum til þess verktaka úr Vík sem nú vinnur að því að hlaða grjótinu upp á búkollu, flytja það að útsýnispallinum og hlaða því upp neðan við hann,“ lýsir Íris framkvæmdunum. Frétt af mbl.is Myndir: Sjáðu gjörbreytta Reynisfjöru Íris Guðnadóttir Einarssonar í fjörunni, sjöundi ættliður við búskap í Þórisholti en sá fyrsti sem þar rekur neyðarþjónustu fyrir bifreiðar samhliða gulrófnarækt. Ljósmynd/Aðsend Endurnýjun búnaðar með vorinu Hugmyndin sé að reyna að verja innviðina á pallinum sem eru skilti, ferðamönnum til viðvörunar, öryggismyndavél, hlið og ljós. „Við ætlum að prófa þetta, ég held að það þurfi töluvert magn og þetta er bara tilraun hjá okkur til að gera eitthvað fari hann ekki að snúa sér í vestanátt fljótlega,“ heldur landeigandinn áfram. Guðni sagði í viðtali á laugardaginn að brimið hefði velt eins til tveggja tonna grjóthnullungum sem væru þeir dúnhnoðrar. Ljósmynd/Guðni Einarsson Hvernig líst þér sjálfri á nýja ásýnd fjörunnar sem faðir þinn lýsti sem mjög tilkomumikilli í viðtali á laugardaginn? „Mér finnst þetta mjög tilkomumikið og Reynisfjara er magnaður staður. Ef við fáum vestanátt mun sandurinn skila sér til baka en nú hefur sorfið úr hlíðinni og það kemur náttúrulega ekki til baka,“ svarar hún og segir enn fremur frá því að landeigendur hafi nú töluverða endurnýjun á ýmsum búnaði í bígerð, ný skilti og annar öryggisbúnaður séu í framleiðslu og verði sett upp með vorinu. „Við tókum að innheimta þjónustugjald í lok árs 2023 og það rennur bara í innviðauppbyggingu, öryggismál og öryggisbúnað,“ segir Íris Guðnadóttir, bóndi og neyðarbifreiðaþjónustuaðili í Þórisholti, að lokum um framkvæmdir í Reynisfjöru til að verja útsýnispall við fjöruna eilífum ágangi höfuðskepnanna. Frétt af mbl.is Reynisfjara tekur stakkaskiptum Tómas hetjan hjá toppliðinu West Ham - Man. Utd, staðan er 1:0 Klúður tímabilsins á Brúnni – Tottenham í miklu veseni Frábær endurkoma Tindastóls Elliði fór á kostum í stórleik Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna að ESB Hefur fjármagnað innrásina í Úkraínu Fleira áhugavert Stal úlpu, réðst á tvær konur og stakk pilt Vill auknar fjárfestingar vegna hótana Íslendingar meðal þeirra handteknu Hjólað í verðtryggingu um áramót Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Hafa fengið ýmsar ábendingar um hjúkrunarheimilið Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fólksbíll lenti aftan á gröfu Reynisfjara tekur stakkaskiptum Margrét segir af sér sem rektor Myndir: Sjáðu gjörbreytta Reynisfjöru Deila tilkynningu írsku lögreglunnar Goddur jarðsunginn í dag #110. - Ari yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Látinn eftir slys á Miklubraut „Búið að eyðileggja líf þriggja hjúkrunarfræðinga“ Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Kjartan úr lífshættu en mikið slasaður Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Starfsfólk bráðamóttökunnar smitað af berklum Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Tómas hetjan hjá toppliðinu West Ham - Man. Utd, staðan er 1:0 Klúður tímabilsins á Brúnni – Tottenham í miklu veseni Frábær endurkoma Tindastóls Elliði fór á kostum í stórleik Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna að ESB Hefur fjármagnað innrásina í Úkraínu Fleira áhugavert Íslendingar meðal þeirra handteknu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Kastaði farsíma í lögreglubíl Vill auknar fjárfestingar vegna hótana Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Hafa fengið ýmsar ábendingar um hjúkrunarheimilið Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fólksbíll lenti aftan á gröfu Reynisfjara tekur stakkaskiptum Margrét segir af sér sem rektor Myndir: Sjáðu gjörbreytta Reynisfjöru Deila tilkynningu írsku lögreglunnar Goddur jarðsunginn í dag #110. - Ari yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Látinn eftir slys á Miklubraut „Búið að eyðileggja líf þriggja hjúkrunarfræðinga“ Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Kjartan úr lífshættu en mikið slasaður Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Starfsfólk bráðamóttökunnar smitað af berklum Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi