Yfir 1.300 leikskólabörn stíga á sviðið í Eldborgarsal Hörpu í dag og flytja lög eftir Dr. Gunna. Börnin hafa æft lögin af kappi í leikskólum borgarinnar og koma nú saman á sviði til að syngja. Þó sviðið í Eldborgarsalnum sé stórt er börnunum skipt niður í fjóra hópa svo öll börn fái að njóta sviðsljóssins. Prump, sól, tásur sem vilja nöfn og Doddi draugur koma við sögu í Hörpu í dag þegar yfir þúsund leikskólabörn stíga á svið í Eldborg í tilefni af Barnamenningarhátíð. Börnin hafa æft sig í marga mánuði. 316 börn sem útskrifast úr leikskóla í vor taka þátt á hverjum tónleikum, auk barna í forskóla Tónskóla Sigursveins og 30 manna hátíðarhljómsveit Tónskólans. Tónleikarnir eru hluti af verkefninu Söngvarvor sem Tónskóli Sigursveins hefur staðið fyrir á hverju vori síðan 2011 þar sem leikskólabörn og kennarar koma saman og syngja sumarið inn. Á hverju ári lánar eitt tónskáld lög sína og texta og í ár varð Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr. Gunni, fyrir valinu. Prumpulagið, Rauða hauskúpan, Systa sjóræningi, Doddi draugur og Glaðasti hundur í heimi hljómuðu í Eldborg og börnin sungu hástöfum. Dr. Gunni samdi auk þess lag sérstaklega fyrir Barnamenningarhátíð og var það frumflutt í dag. Lagið heitir Góðan daginn sól og börnin gerðu sitt besta til að fá geisla sólarinnar til að brjótast í gegnum þokuna á Austurbakkanum. Tónleikarnir eru eitt vinsælasta og fjölmennasta atriði Barnamenningarhátíðar og er Eldborgarsalurinn þétt setinn af foreldrum, ömmum, öfum og frændfólki. Leikskólabörnin troðfylla Eldborg fjórum sinnum í dag. Barnamenningarhátíð hófst formlega í gær og fram undan eru spennandi dagar þar sem börn og ungmenni taka yfir og fá aðgengi að menningu og listum um alla borg. Fyrsti hópurinn steig á svið klukkan 10 í morgun og ljósmyndari fréttastofu var Í Hörpu: