Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

KAPP og Laxey undirrita samning í Barcelona

Read Full Article →

KAPP ehf. og Laxey undirrituðu samning á sjávarútvegssýningunni í Barcelona í dag um hönnun og forritun á heildstæðu kerfi sem sameinar vöktun vatnsgæða og stjórnun annars lykilbúnaðar, ásamt heildaryfirsýn yfir rekstur kerfisins. Í tilkynningu segir að markmiðið sé að skapa öflugt og notendavænt umhverfi sem styðji við öruggan, skilvirkan og gagnadrifinn rekstur. Laxey hefur byggt upp starfsemi á sviði landeldis með áherslu á sjálfbærni, nýsköpun og ábyrga uppbyggingu. Með samningnum við KAPP er stigið skref til frekari samþættingar stýringar, vöktunar og yfirsýnar í rekstrinum. Sjá einnig KAPP og Loðnuvinnslan gera samning um nýja uppsjávarvinnslu „Við erum spennt að fá KAPP til liðs við okkur sem hefur mikla reynslu í fiskeldi og iðnstýringum. Stjórnkerfi stöðvarinnar er mjög mikilvægur þáttur í að hámarka framleiðni og gæði. Það er mikilvægt að hafa sterka samstarfsaðila í þeirri þróunarvinnu,“ segir Hallgrímur Steinsson, rekstrarstjóri Laxeyjar. KAPP sérhæfir sig í þjónustu og lausnum fyrir fisk- og kjúklingavinnslu, fiskeldi og matvöruverslanir. Félagið hefur á undanförnum misserum aukið enn frekar þjónustu sína við fiskeldisfyrirtæki, bæði á sviði hugbúnaðar og vélbúnaðarlausna, til að mæta vaxandi þörfum greinarinnar.

Share this article