Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ekki kom til sérstakrar arðgreiðslu hjá Landsvirkjun

Read Full Article →

Aðalfundur Landsvirkjunar samþykkti í dag tillögu stjórnar um 165 milljóna dala arðgreiðslu í ríkissjóð, sem á núverandi gengi er um 20 milljarðar króna, að því er kemur fram í tilkynningu. Samanlagður arður vegna rekstraráranna 2021 til 2025 nemur um 110 milljörðum króna. Þegar ársreikningur Landsvirkjunar var birtur þann 19. febrúar sl. var greint frá því að stjórn félagsins hefði til skoðunar að leggja til sérstaka arðgreiðsla til viðbótar við ofangreinda 165 milljóna dala arðgreiðslu. Nú liggur fyrir að ekki mun koma til sérstakrar arðgreiðslu hjá Landsvirkjun vegna rekstrarársins 2025. Landsvirkjun staðfestir þetta í svari við fyrirspurn Viðskiptablaðsins. Sjá einnig 20 milljarðar í arð og sér­stök arð­greiðsla til skoðunar Á aðalfundi Landsvirkjunar í dag voru allir sitjandi stjórnarmenn endurkjörnir. Formaður stjórnar er Brynja Baldursdóttir og aðrir stjórnarmenn eru Berglind Ásgeirsdóttir, Hörður Þórhallsson, Sigurður Magnús Garðarsson, og Þórdís Ingadóttir. Varamenn í stjórn Landsvirkjunar eru Elva Rakel Jónsdóttir, Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, Pétur Már Halldórsson, Styrkár Jafet Hendriksson og Stefanía Nindel.

Share this article