Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Óhugnanlegt að finna styrkinn dofna í höndum og fótum

Read Full Article →

Jón Pétur Zimsen og sonur hans lögðu af stað úr Kollafirðinum seinnipartinn í gær. Þeir sigldu á kajökum sínum út fjörðinn og svo í átt að Kjalarnesi. Á leiðinni tapaðist blaðkan, sem knýr bátinn áfram, á kajak Jóns Péturs. Feðgarnir voru við veiðar í nokkra stund. Þingmaður Sjálfstæðisflokks og sonur hans voru orðnir kaldir og hraktir þegar þeim var bjargað úr sjónum í Kollafirði í gærkvöld. Þeir þakka björgunarsveitum lífsbjörgina. Á leiðinni í land var sonurinn með kajak Jóns Péturs í togi. Honum hvolfdi og Jón Pétur lenti í sjónum. Jón Pétur reyndi þá að fara upp á kajak sonar síns en fyrir vikið lyftist báturinn hans upp. „Og þá fara að byrja tilfæringar hjá okkur að koma honum framar á bátinn, til að sökkva honum að framan til að hann geti pedalað með okkur í land.“ Enginn ótti á meðan beðið var eftir björgunarsveitum Hallinn á kajak sonarins varð hins vegar of mikill og feðgarnir enduðu báðir í sjónum. Þeir náðu sambandi við Neyðarlínuna og björgunarsveitir voru kallaðar út. Jón Pétur segir að þeir hafi hvorki verið hræddir né fundið fyrir miklum kulda á meðan þeir biðu björgunarinnar. „Heldur bara beið maður þarna og svo komu þeir. Og það sem var kannski erfiðast, að ég var í smekkbuxum og þær voru komnar niður á hælana á mér. Þannig ég var svona heftur, ég gat ekki synt almennilega með fótunum.“ Viðbragðsaðilar biðu feðganna þegar þeir komu í land. Þeir fengu aðhlynningu í sjúkrabíl áður en þeir voru fluttir á bráðamóttökuna. Þaðan voru þeir útskrifaðir skömmu síðar. Jón Pétur segir það hafa komið sér á óvart hve lágur líkamshiti þeirra var eftir volkið. „Hann var 33 og ég var 32 gráður. Og við erum bara drifnir úr fötunum, inn í bíl og undir teppi. Og vökvi í æð, svona hlýr vökvi. Og það tók okkur svona hálftíma bara að ná eðlilegum líkamshita.“ Fyrst og fremst þakklæti í huga „Þetta fólk, björgunarsveitarmennirnir og bráðamóttakan, á þvílíkt hrós skilið fyrir fagmannleg og snaggaraleg viðbrögð,“ segir Jón Pétur. Feðgunum líður vel í dag og Jón Pétur er sannfærður um að þessi lífsreynsla muni tengja feðgana betur saman. Jón Pétur ætlar að kaupa sér þurrbúning fyrir næstu ferð. „Þarna vorum við úti á sjó í hálftíma saman, kannski ekki langur tími, en þetta var samt ákveðin lífsreynsla. Og líka pínku óhugnanlegt að finna það að styrkur í höndum og fótum hann svona dofnar smátt og smátt. Maður finnur það. Það var aðeins erfitt.“

Share this article