Alræmdur norðurkóreskur hakkarahópur er grunaður um að hafa rænt rafmyntum að verðmæti um 300 milljón dollara eða um 36,7 milljarða íslenskra króna um helgina. Þetta er stærsta rán á rafmyntum sem vitað er um á þessu ári. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem svo háþróað rafmyntarán er tengt við Norður-Kóreu en stolnar rafmyntir eru notaðar til að fjármagna þróun kjarnorkuvopna samkvæmt nefnd Sameinuðu þjóðanna. Hópurinn notar skammstöfun Norður-Kóreu í nafni sínu; DPRK Lazarus Group en DPRK er stytting á Democratic People´s Republic of Korea. Nefnd Sameinuðu þjóðanna áætlar að Norður-Kórea hafi rænt yfir þremur milljörðum dollara í rafmyntum síðan 2017. Bandaríkin sökuðu Norður-Kóreu um að hafa framið eitt stærsta rán sögunnar á rafmyntum á síðasta ári, þegar rafmyntum að andvirði 1,5 milljarða dollara var rænt í sams konar ráni.
The article describes a large-scale cryptocurrency heist attributed to the DPRK Lazarus Group, an advanced persistent threat (APT) actor, but does not detail a specific technical vulnerability or attack vector. No information is provided regarding CVSS scores, affected software versions, fixed versions, or technical workarounds, as the report focuses on the incident's geopolitical and financial impact rather than a patchable flaw.