Innlent | mbl | 22.4.2026 | 9:12 Hvalavinir skora á Hönnu Katrínu Hvalavinir vilja að Hanna Katrín stöðvi veiðarnar. Samsett mynd Setja bókamerki Samtökin Hvalavinir krefjast þess að stjórnvöld stöðvi hvalveiðar þar til lagaleg skylda Íslands í þeim efnum er ljós. Þetta kemur fram í bréfi Hvalavina til Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra en tilefnið er yfirlýsing Hvals hf. um að fyrirtækið hyggist veiða langreyðar í sumar. „Við viljum lýsa því skýrt yfir að áframhaldandi heimild til hvalveiða brýtur gegn lagalegum skuldbindingum Íslands, skaðar íslenska náttúru og veldur dýrunum þjáningum sem ekki eru líðandi í siðuðu samfélagi. Að auki skaða hvalveiðar að óþörfu orðspor Íslands á alþjóðavettvangi. Við krefjumst tafarlausra aðgerða,“ segir í upphafi bréfs Hvalavina. Minna áyfirlýsingar utanríkisráðherra Þá vísa samtökin í nýlegt lagaálit Snjólaugar Árnadóttur, doktors í lögfræði, þegar þau fara fram á að ríkisstjórnin stöðvi veiðar þar til lagaleg skylda landsins er ljós. „Snjólaug bendir á að fyrirvari Íslands við ákvörðun Alþjóðasamningsins um stjórn hvalveiða (IWC) um núllkvóta sé lagalega hæpinn með hliðsjón af 19. og 20. gr. Vínarsamningsins um milliríkjasamninga,“ segir í bréfinu. „Ef fyrirvarinn yrði talinn ósamrýmanlegur markmiði og tilgangi samningsins eins og honum hefur verið breytt, gæti Ísland talist bundið af banninu við hvalveiðum að fullu. Í slíkum aðstæðum gæti útgáfa veiðileyfa falið í sér hættu á að Ísland bryti gegn skuldbindingum sínum.“ Þá minna samtökin „á ítrekaðar yfirlýsingar utanríkisráðherra um áherslur Íslands á gildi alþjóðlegra stofnana, sem Ísland vilji virða“. Samtökin segja sömuleiðis að Ísland sé skuldbundið af Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna til að eiga alþjóðlegt samstarf um nýtingu og verndun hvala. Lifandi hvalir skili meiri tekjum Í bréfinu er það þá rakið að Hvalur hf. hafi ekki veitt langreyðar síðustu tvö ár og að forstjóri fyrirtækisins, Kristján Loftsson, hafi sjálfur sagt opinberlega að verð á japanska markaðnum, sem er eini útflutningsmarkaðurinn, væri „svo lágt að það er ekki réttlætanlegt að fara á veiðar.“ „Úttekt á tekjum Hvals hf. í tengslum við hvalveiðar hefur sýnt að veiðarnar hafa ekki skilað Hvali hf. hagnaði síðustu ár heldur hefur félagið á árunum 2012 til 2020 tapað þrem milljörðum króna af hvalveiðum. Á sama tíma skilar hvalaskoðun Íslandi um 26 milljónum bandaríkjadala á ári frá 350.000+ ferðamönnum. Lifandi hvalir skila óneitanlega meiri tekjum fyrir þjóðarbúið,“ segir í bréfinu. Þá halda Hvalavinir því fram að tafarlaus stöðvun veiða væri raunhæf á þessum tímapunkti þar sem engar veiðar hafa átt sér stað í tvö ár. Að lokum fara Hvalavinir fram á þrjár aðgerðir: 1. Að veiðileyfi Hvals hf. verði fellt úr gildi þar til lagaleg staða Íslands hefur verið rannsökuð og búið er að setja í fastar skorður hvaða stofnun beri ábyrgð á eftirliti. 2. Að fyrirhugað lagafrumvarp um bann við hvalveiðum í hagnaðarskyni verði lagt fram á Alþingi sem forgangsmál þessarar þingsetningar, án frekari tafar. 3. Að ríkisstjórn Íslands grípi til formlegra aðgerða til að draga til baka fyrirvara sinn gagnvart IWC-hvalveiðibanninu í samræmi við tilmæli Alþjóðalögfræðinefndar Sameinuðu þjóðanna og ályktanir Allsherjarþings um fulla framkvæmd UNCLOS. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Rifust við áhöfn og meinað að fljúga Hvalavinir skora á Hönnu Katrínu Historic Fischer–Spassky score sheets sell for ISK 20 million Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Gott að Klopp sé ekki eins og Sir Alex Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þegar byrjað að treysta varnirnar Dónaskapur og ruddaleg framkoma ógn við lýðræðið Bílvelta á Hringbraut Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Leita ferðamanns í Þjórsárdal Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Hesthúsasvæði fer í biðstöðu Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fyrstu spaðarnir komnir til landsins Fiskflutningabíll valt: Veginum lokað Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Vinsælum veitingastöðum lokað X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Sérsveitin kölluð út á Akureyri Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Nýjast á mbl.is » Rifust við áhöfn og meinað að fljúga Hvalavinir skora á Hönnu Katrínu Historic Fischer–Spassky score sheets sell for ISK 20 million Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Gott að Klopp sé ekki eins og Sir Alex Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Á ekki að halda vöku fyrir fólki“ Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Kostnaðarsamt ójafnvægi „Af hverju fólk festist í afbrotum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Leita ferðamanns í Þjórsárdal Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Hesthúsasvæði fer í biðstöðu Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fyrstu spaðarnir komnir til landsins Fiskflutningabíll valt: Veginum lokað Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Vinsælum veitingastöðum lokað X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Sérsveitin kölluð út á Akureyri Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set