Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandarískir hermenn til Nígeríu til þjálfunar

  • What: The United States is sending 200 soldiers to Nigeria to train Nigerian soldiers to fight against Islamist militants.
  • Impact: The training aims to improve the Nigerian army's ability to combat terrorism in the region.
Read Full Article →

Bandaríkjaher ætlar að senda 200 hermenn til Nígeríu á næstu vikum til að þjálfa nígeríska hermenn til að berjast gegn vígasveitum íslamista. Nígería hefur verið undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn vegna óstöðugleika í landinu og óskaði nígeríska ríkisstjórnin eftir aðstoð frá Bandaríkjaher til að þjálfa herinn. Bandarísku hermennirnir munu ekki berjast gegn vígasveitum hryðjuverkamanna, heldur miðla upplýsingum sem nýtast nígeríska hernum í árásum og aðgerðum þeirra gegn hryðjuverkamönnum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt kristna íbúa landsins vera ofsótta í Nígeríu. Stjórnvöld í Nígeríu hafa hafnað því að hryðjuverkaógnin í landinu beinist sérstaklega gegn kristnu fólki og benda á að múslimar og fólk af öðrum trúarhópum verði líka reglulega fyrir árásum í landinu.

Share this article