Á mánudag hefst atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga á heilbrigðis- og öldrunarstofnunum, stofnunum fyrir fatlað fólk og í fangelsinu á Hólmsheiði. Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 16. maí. Rétt er að taka fram að aðeins þeir sem dvelja á stofnununum, eru þar vistmenn eða heimilismenn, hafa rétt til að kjósa þar. Frá klukkan 15 til klukkan 17 á mánudag geta íbúar Skjóls við Kleppsveg í Reykjavík og fangar í fangelsinu á Hólmsheiði greitt atkvæði. Dagana fram að sveitarstjórnarkosningum verður hægt að greiða atkvæði á öðrum heilbrigðis- og öldrunarstofnunum og stofnunum fyrir fatlað fólk. Í tilkynningu frá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu eru tímasetningar atkvæðagreiðslna birtar. Þær eru eftirfarandi: Hvar og hvenær verður boðið upp á atkvæðagreiðslu? Fangelsið Hólmsheiði Mánudaginn 27. apríl, kl. 15:00-17:00 Skjól við Kleppsveg, Reykjavík Mánudaginn 27. apríl, kl. 15:00-17:00 Hjúkrunarheimilið Ísafold, Garðabæ Þriðjudaginn 28. apríl, kl 15:00-17:00 Hrafnista Boðaþingi, Kópavogi Þriðjudaginn 28. apríl, kl.15:30-17:00 Kleppsspítali, Reykjavík Miðvikudaginn 29. apríl, kl. 15:00-16:00 Hrafnista Hafnarfirði, Miðvikudaginn 29. apríl, kl.14:00-18:00 Sunnuhlíð, Kópavogi Miðvikudaginn 29. apríl, kl 15:00-17:00 Eir við Hlíðarhús í Grafarvogi, Reykjavík Fimmtudaginn 30. apríl, kl. 13:00-16:00 Hjúkrunarheimilið Sóltún, Reykjavík Fimmtudaginn 30. apríl, kl.13:00-16:00 Heilsuvernd Vífilsstaðir, Garðabæ Fimmtudaginn 30. apríl, kl.15:30-16:30 Hlaðgerðarkot, Mosfellsbæ Laugardaginn 2. maí, kl. 13:00-14:00 Reykjalundur, Mosfellsbæ Laugardaginn 2. maí, kl 15:00-16:00 Hrafnista Laugarási , Reykjavík Laugardaginn 2.maí, kl. 11:00-15:00 Hamrar Langatanga 2 a, Mosfellsbæ Mánudaginn 4. maí, kl 14:00-16:00 Droplaugarstaðir við Snorrabraut, Reykjavík Mánudaginn 4. maí, kl. 14:30-17:30 Skógarbær við Árskóga, Reykjavík Þriðjudaginn 5. maí, kl. 15:30-17:30 Mörk, Reykjavík Miðvikudaginn 6. maí, kl. 15:00-18:00 Vík, Kjalarnesi Miðvikudaginn 6. maí, kl 15:00-17:00 Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund, Reykjavík Miðvikudaginn 6. maí, kl 15:00-18:00 Sólvangur, Hafnarfirði Fimmtudaginn 7. maí, kl 15:00-16:30 Hrafnista Sléttuvegi , Reykjavík Fimmtudaginn 7. maí, kl 15:30-17:30 Seltjörn, Seltjarnarnesi Föstudaginn 8. maí, kl 15:00-17:00 Landspítalinn Grensásdeild, Reykjavík Mánudaginn 11.maí, kl 16:30-18:00 Landspítalinn Háskólasjúkrahús Fossvogi Þriðjudaginn 12. maí, kl. 14:00-17:00 Landspítalinn Háskólasjúkrahús Hringbraut Miðvikudaginn 13.maí, kl.14:00-17:00 Landspítalinn, Geðdeild, Háskólasjúkrahús Hringbraut Miðvikudaginn 13.maí, kl. 15:00-17:00 Landakot Föstudaginn 15. maí, kl. 15:00-18:00 Líknardeildin í Kópavogi Föstudaginn 15. maí, kl. 15:00-16:30 Þá verður einnig hægt að kjósa á kjördag á Hólmsheiði milli klukkan 10 og 11, á Landspítalanum í Fossvogi milli klukkan 10 og 12:30, á Landspítalanum við Hringbraut milli klukkan 10 og 12 og á geðdeild Landspítala við Hringbraut milli klukkan 12:30 og 13.