- What: Russian attacks on Bohodukhiv in the Kharkiv region of Ukraine resulted in the deaths of three children and one man.
- Impact: Civilians in the Kharkiv region are at increased risk due to intensified Russian attacks on infrastructure and residential areas.
Þrjú börn, tveir eins árs drengir og tveggja ára stúlka, og karlmaður létu lífið í árásum Rússa á borgina Bohodukhiv í Kharkiv-héraði í Úkraínu í gær. Þá slasaðist einnig kona á áttræðisaldri í árásunum og barnshafandi kona á fertugsaldri. Rússneskar hersveitir hafa aukið árásir sínar í Kharkiv-héraði undanfarið, sér í lagi á samgöngu- og orkuinnviði. Samkvæmt eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi í Úkraínu hafa 15.000 almennir borgarar verið drepnir í Úkraínu síðan innrás Rússa hófst fyrir hartnær fjórum árum. Á síðasta ári var mesta mannfall á einu ári síðan innrásin hófst, þegar yfir 2.500 manns létu lífið.