Innlent | mbl | 22.4.2026 | 20:03 Vilja selja eignir og bjóða fjölbreyttari lausnir Sjálfstæðisflokkurinn vill breytingar. Ljósmynd/Hákon Broder Lund Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Ævintýralegur vöxtur í Ölfusi Nýta þarf orkuna á svæðinu Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Pétur vill rauða dregilinn út » Fleiri tengdar fréttir Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á breytingar sem hægt er að ráðast í strax fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Flokkurinn vill ráðast í lausnir í leikskóla- og daggæslumálum og blása til sóknar í grunnskólamálum og samgöngumálum. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, kynnti áherslur og stefnu flokksins fyrir komandi kosningar í Bragganum í Nauthólsvík síðdegis. „Við ætlum að leggja áherslu á málin sem við getum ráðist í strax á næsta kjörtímabili og við kynntum í dag í rauninni fjóra verkefnalista. Lista yfir það sem við ætlum að gera fyrstu 100 dagana, fyrstu tólf mánuðina og það sem við ætlum að gera á fjórum árum og framtíðarverkefni,“ segir Hildur í samtali við mbl.is. Hún segir að Sjálfstæðisflokkurinn ætli að ráðast í að bæta rekstur borgarinnar strax, m.a. með því að fækka millistjórnendum, selja eignir á borð við Malbikunarstöðina á Höfða og Ljósleiðarann. „Við ætlum að ráðast í stjórnkerfisúttekt á borgarkerfinu og leita leiða til að hagræða í rekstrinum. Það er margt sem er hægt að gera strax,“ segir Hildur. Vilja heimgreiðslur í 12 mánuði Þá vill flokkurinn bjóða upp á fjölbreyttari lausnir í leikskóla- og daggæslumálum, m.a. með því að gera vinnustöðum kleift að opna daggæslur og endursemja við sjálfstætt starfandi skóla. „Við viljum líka fara í uppbyggingu á leikskóla og húsnæði í samstarfi við einkaaðila og bjóða heimgreiðslur í allt að 12 mánuði fyrir þau sem vilja vera lengur heima,“ segir Hildur. Þá segir Hildur að flokkurinn hafi miklar áhyggjur af stöðu skólamála og vill flokkurinn setja meiri kraft í að koma grunnskólum borgarinnar í fremstu röð. „Þar ætlum við að fara meira í að mæla árangur og birta niðurstöður. Við viljum sjá samræmdar mælingar í öllum árgöngum grunnskólans, ráðast í læsisátak og tveggja ára tilraunaverkefni með símafrí í grunnskólum, þar sem við mælum árangurinn af því.“ Hildur segist finna fyrir því að samgöngumál brenni á borgarbúum. Flokkurinn vill leggja áherslu á verkefni sem hægt er að ráðast í strax. Nefnir Hildur sem dæmi snjallar ljósastýringar, framkvæmdir á Sprengisandsgatnamótum og að taka Miklubrautargöng út úr samgöngusáttmálanum og setja göngin í framkvæmd einkaaðila þar sem hægt væri að hefja framkvæmdir á næsta kjörtímabili. Golfvöllur í Viðey Að lokum vill Sjálfstæðisflokkurinn gera Reykjavík að íþróttaborg. Hildur segir það enga tilviljun að fólk úr íþróttahreyfingunni skipi lista flokksins. „Við ætlum strax fyrstu hundrað dagana að kortleggja aðstöðumál íþróttafélaganna. Sjá hvernig fjármagni hefur verið varið til íþróttafélaganna á síðustu áratugum og hvar þörfin er mest. Við ætlum líka að fara í átakið Allir æfa, sem hvetur til þess að öll börn séu í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Við myndum vilja vinna með hverfisfélögunum að því að það væri innheimt bara eitt gjald fyrir yngstu börnin sem æfa margar íþróttir,“ segir Hildur. Hún bætir við að flokkurinn sé einnig stórhuga og sjái fyrir sér í framtíðinni að byggja upp golfvöll í Viðey og koma aftur upp aðstöðu til skíðaiðkunar í Skálafelli í samstarfi við einkaaðila. Mælast stærst Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið á miklu flugi í skoðanakönnunum og mældist stærstur flokka í borginni í nýjustu könnun Gallup. Hildur segist finna fyrir miklum meðbyr og segist full tilhlökkunar fyrir næstu vikum og að eiga samtöl við borgarbúa. Frétt af mbl.is Meirihlutinn fallinn Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Ævintýralegur vöxtur í Ölfusi Nýta þarf orkuna á svæðinu Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Pétur vill rauða dregilinn út » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Grindavík - Valur, staðan er 56:58 Valur - Fram, staðan er 21:14 ÍBV - Haukar, staðan er 34:34 Ekki vitað í hvaða erindagjörðum ferðamaðurinn var Fyrsta stig Keflavíkur kom gegn Blikum Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilja selja eignir og bjóða fjölbreyttari lausnir Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Áhrif á þjónustu Orkuveitunnar gætu orðið veruleg Fjölgunin ekki aðeins hjá ríki Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Flugvél hvolfdi við lendingu Nærri tuttugu gráða hiti Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Leit hafin að nýju að ferðamanninum Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Nýjast á mbl.is » Grindavík - Valur, staðan er 56:58 Valur - Fram, staðan er 21:14 ÍBV - Haukar, staðan er 34:34 Ekki vitað í hvaða erindagjörðum ferðamaðurinn var Fyrsta stig Keflavíkur kom gegn Blikum Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða „Af hverju fólk festist í afbrotum“ Vilja selja eignir og bjóða fjölbreyttari lausnir Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Flugvél hvolfdi við lendingu Nærri tuttugu gráða hiti Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Leit hafin að nýju að ferðamanninum Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set