Innlent | mbl | 23.4.2026 | 13:27 Andlát: Valdimar Örnólfsson Setja bókamerki Valdimar Örnólfsson, íþróttafrömuður og skíðakappi, lést á Hrafnistu Sléttuvegi mánudaginn 20. apríl, 94 ára að aldri. Valdimar fæddist á Suðureyri í Súgandafirði 9.2. 1932. Foreldrar hans voru Örnólfur Valdimarsson kaupmaður og útgerðarmaður og Ragnildur Kristbjörg Þorvarðardóttir kennari og húsmóðir. Valdimar kvæntist 19.3. 1963 Kristínu Jónasdóttur f. 24.4.1933, fyrrverandi flugfreyju og forstöðumanni hjá Reykjavíkurborg. Kristín lést 17.6. 2019. Þau eignuðust 3 syni, Jónas orkuverkfræðing og leiðsögumann f. 1963, Örnólf f. 1964 bæklunarlækni og Kristján bæklunarlækni í Bodö í Noregi, f. 1967. Valdimar og Kristín eignuðust 9 barnabörn og 2 barnabarnabörn. Með Valdimar er genginn einn af atkvæðamestu íþróttafrömuðum síðustu aldar. Hann varð landsþekktur þegar hann stjórnaði og kenndi leikfimi í Ríkisútvarpinu á árunum 1957-82 og ekki síður fyrir frumkvöðlastarf í íþróttum. Hann, ásamt félögum sínum, stofnaði og stjórnaði Skíðaskólanum í Kerlingarfjöllum frá 1961 til aldamóta 2000 þegar loka þurfti skólanum vegna snjóleysis. Skíðaskólinn laðaði til sín tugi þúsunda Íslendinga sem nutu þess að skíða að sumri til á hálendinu á daginn og syngja saman á víðfrægum kvöldvökum. Valdimar lauk stúdentsprófi frá MR 1953, íþróttakennaraprófi frá Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni 1954, íþróttafræðiprófi frá Íþróttaháskólanum í Köln 1956, prófi í frönsku og frönskum bókmenntum frá Háskólanum í Grenoble í Frakklandi 1957. Hann var íþróttakennari við MR 1957-67 og kenndi frönsku við sama skóla 1958-72. Hann var íþróttastjóri Háskóla Íslands frá 1967 og þar til hann fór á eftirlaun. Valdimar lék Harald í Skugga-Sveini í Þjóðleikhúsinu 1961-62, lærði söng hjá Sigurði F. Demetz 1958-61, var einn af stofnendum Söngsveitarinnar Filharmoníu, söng í MR kvartettinum, Stúdentakórnum og söng um áratugaskeið með Karlakórnum Fóstbræðrum og síðar með Gömlum Fóstbræðrum. Valdimar var formaður Íþróttakennarafélags Íslands 1957-58, formaður Íþróttanefndar ríkisins 1971-91, var stofnandi og fyrsti formaður Fimleikasambands Íslands 1968-70 og var fyrsti formaður Ólympíuakademíunnar 1987-97. mbl.is/Kristinn Ingvarsson Hann var Íslandsmeistari á skíðum 1952 og í frjálsum íþróttum 1953, t tók þátt í fjölda stúdentamóta erlendis, var Frakklandsmeistari stúdenta á skíðum 1957 og í þriðja sæti í stórsvigi á heimsmeistaramóti stúdenta í Zakopane í Póllandi 1958. Hann var fánaberi í ólympíuliði Íslands í alpagreinum í Cortina á Ítalíu 1956 og var þjálfari, fánaberi og fararstjóri á Ólympíuleikunum í Innsbruck 1964. Valdimar er heiðursfélagi ÍSÍ og FSÍ, og hefur m.a. hlotið riddarakross Fálkaorðunnar. Útför Valdimars fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 11. maí. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skuldsett en öflugt sveitarfélag KR-ingar að rassskella Eyjamenn – staðan 0:4 City að kræja í stjörnu Chelsea? Andlát: Valdimar Örnólfsson Skjóta eigi á öll skip sem leggja tundurdufl Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Börnin vilja vinna meira með fíknivanda sinn Hvað vildu þeir til Mexíkó? Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Sviptur ökuréttindum á staðnum Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Þrír hafa verið náðaðir Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Logi Einarsson fundaði með Apple Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Nýjast á mbl.is » Skuldsett en öflugt sveitarfélag KR-ingar að rassskella Eyjamenn – staðan 0:4 City að kræja í stjörnu Chelsea? Andlát: Valdimar Örnólfsson Skjóta eigi á öll skip sem leggja tundurdufl Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Þarf árangursríka útlendingastefnu Illa gengur að mynda stjórn í Danmörku Björn Steinar leikur í Notre Dame Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Sviptur ökuréttindum á staðnum Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Þrír hafa verið náðaðir Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Logi Einarsson fundaði með Apple Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum