Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 11.2.2026 | 9:30 Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Kristrún Frostadóttir eftir ríkisstjórnarfund í gærdag. mbl.is/Árni Sæberg Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að með tengingu bóta almannatryggingakerfisins við bæði verðlags- og launavísitölu sé aðeins verið að standa við marggefin fyrirheit fjölda ríkisstjórna. Frétt af mbl.is Ekki er hlustað á varúðarorð Við áformunum hefur víða verið varað, bæði af atvinnulífi og verkalýðshreyfingu, fjármálaráði og jafnvel fjármálaráðherra, en á dögunum birtu hagfræðingarnir Gylfi Zoëga og Axel Hall grein um það, þar sem þeir hvöttu stjórnvöld til þess að taka mark á þeim varnaðarorðum. „Lögin hafa reyndar í gegnum tíðina verið þannig að þessi bótaflokkur eigi að hækka með launum eða verðbólgu, hvort sem er hærra. Lögunum hefur bara ekki verið fylgt,“ sagði Kristrún við Morgunblaðið eftir ríkisstjórnarfund í gær. Eru varnaðarorðin misskilningur? „Ég skil fullkomlega áhyggjur hagfræðinga vegna ófjármagnaðrar pólitískrar forgangsröðunar en þá horfa þeir til opinna tékka fortíðar, sem ekki er gert ráð fyrir í fjármálaáætlun. Þannig er það ekki hjá þessari ríkisstjórn.“ Er ekki einmitt verið að vara við því að bæturnar hækki umfram lægstu laun með gríðarlegum kostnaði? „Það er þá a.m.k. eitthvað í að það gerist ef sú verður raunin. Þarna er hópur, sérstaklega þeir sem eru á lægstu greiðslunum, strípuðum greiðslum, sem situr ekki við kjaraborðið, og situr eftir.“ Mun það ekki óhjákvæmilega skapa kurr á vinnumarkaði? „Ég held að þetta skapi ákveðna ábyrgð hjá verkalýðshreyfingunni, að hækkanir á almenna vinnumarkaðnum og þeim opinbera styðji líka þessa hópa í samfélaginu.“ Þú vísar þessari gagnrýni á bug? „Nei, ég er að taka undir hana með þeim hætti að lög segja að greiðslur almannatrygginga eigi að fylgja verðbólgu og launum, hvort heldur sem hærra er, en því hefur ekki verið fylgt fyrr en nú. Það gerum við með ábyrgum hætti, því breytingin er að fullu fjármögnuð.“ Hvernig? „Hún er fjármögnuð bæði með aukinni hagræðingu og tekjum, eins og alltaf hefur staðið til og kemur fram í fjármálaáætlun.“ Verða skattar þá hækkaðir til að standa straum af því? „Það verða engar nýjar skattahækkanir til að mæta þessu. Það var gert ráð fyrir þessum útgjöldum og raunar áður en þetta frumvarp leit dagsins ljós. Við gætum því gert þetta án þess að lögfesta það, en förum þessa leið vegna vantrúar á getu kerfisins, stjórnmálanna, til að standa við þetta loforð sem margir stjórnmálaflokkar hafa talað fyrir, árum saman.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Fyrrverandi landsliðsmaður á leið í fangelsi Talin hafa selt lagasafnið fyrir 24,5 milljarða Britney selur allt safnið sitt Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Viktor Gísli til Guðjóns Vals? ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Hagsmunavarsla eflir sendiráðið Mun fleiri taka hlutdeildarlán Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Samkomulag loks í augsýn rúmum sjö árum síðar Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Þrír handteknir eftir innbrot í verslun Mun fleiri taka hlutdeildarlán Neitar afturvirkni í búvörufrumvarpi Skýr arðsemismarkmið mikilvæg Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson Tæplega 600 skráð sig úr flokknum Fyrrverandi landsliðsmaður á leið í fangelsi Talin hafa selt lagasafnið fyrir 24,5 milljarða Britney selur allt safnið sitt Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Viktor Gísli til Guðjóns Vals? ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Stal úlpu, réðst á tvær konur og stakk pilt Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Neitar afturvirkni í búvörufrumvarpi Hagsmunavarsla eflir sendiráðið Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Þrír handteknir eftir innbrot í verslun Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Mun fleiri taka hlutdeildarlán Neitar afturvirkni í búvörufrumvarpi Skýr arðsemismarkmið mikilvæg Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson Tæplega 600 skráð sig úr flokknum

Share this article