Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Hótar Bretum háum tolli ef þeir leggja ekki niður netskatt

  • What: Trump threatens tariffs on UK if they don't lower digital tax
  • Impact: UK-based tech companies and digital service providers may be affected by potential trade tensions
Read Full Article →

Donald Trump hefur hótað því að leggja tolla á Breta ef þeir leggja ekki niður netskattinn, sérstakan skatt á stafræna þjónustu. Bandarísk samfélagsmiðlafyrirtæki eru á meðal þeirra sem greiða slíkan skatt. „Ef þeir fella ekki niður skattinn þá skellum við háum tollum á Bretland,“ sagði Trump við blaðamenn í skrifstofu sinni í Hvíta húsinu í gærkvöld. Spurður að því hversu háir tollarnir yrðu sagði forsetinn að þeir myndu kosta Breta meira en þeir fá með álagningu skattsins. Skatturinn beinist gegn „bestu fyrirtækjum í heimi“ Skatturinn, sem var kynntur til sögunnar 2020, er 2% tekjuskattur. Hann er lagður á fyrirtæki sem hafa yfir 500 milljón pund í árstekjur af stafrænum rekstri á heimsvísu, sem eru um 83 milljarðar króna, ef og aðeins ef breskir notendur skila yfir 25 milljónum punda í kassa fyrirtækjanna, sem eru rúmir fjórir milljarðar króna. Bandarísku tæknirisarnir Apple, Google og Meta eru á meðal þeirra fyrirtækja sem borga þennan skatt. Skatturinn hefur um árabil verið þrætuepli á milli Breta og Bandaríkjamanna og Trump segir hann beinast gegn „bestu fyrirtækjum í heimi“. Samskipti ríkjanna hafa stirðnað Samskipti ríkjanna tveggja hafa stirðnað á síðustu vikum, ekki síst eftir að Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands útilokaði aðkomu breska hersins í stríðinu í Mið-Austurlöndum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bandaríkjaforseti hótar að beita tollum gegn ríkjum sem innheimta netskatt, líkt og fjallað er um í frétt The Guardian . Í ágúst sagðist forsetinn ætla að standa uppi í hárinu á þeim ríkjum „sem ráðast á“ bandarísk tæknifyrirtæki, eins og hann orðaði það með slíkum skatti. Þá sagði hann netskatta vera hannaða til þess að skaða eða mismuna bandarískum tæknifyrirtækjum.

Share this article