Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þýskalandskanslari segir enga flýtimeðferð til ESB-aðildar í boði fyrir Úkraínu

Read Full Article →

Friedrich Merz Þýskalandskanslari segir ekkert útlit fyrir að Úkraínumenn fái flýtimeðferð í aðildarviðræðum að Evrópusambandinu en leggur til að þeim verði veittur aðgangur að fundum þess án atkvæðaréttar. Merz lét þessi orð falla eftir fund óformlegum fundi leiðtoga Evrópusambandsins á Kýpur þar sem Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti var meðal gesta. Úkraínumenn hafa lengi þrýst á að aðildarviðræðum verði hraðað sem hefur meðal annars tafist vegna andstöðu Ungverjalands undir forsæti Viktors Orbans. Ósigur hans í þingkosningum fyrr í apríl eykur vonir um að Úkraína geti stigið næstu skref í átt til aðildar. Ríki sambandsins hafa ekki verið ginnkeypt fyrir hraðri inngöngu Úkraínu og Friedrich Merz sagði alla vita að slíkt væri í raun útilokað. Zelensky sagði Úkraínu ekki þarfnast einhvers konar táknrænnar aðildar að Evrópusambandinu. Úkraína berjist á vígvellinum fyrir sameiginlegum evrópskum gildum og verðskuldi því fulla, óskoraða aðild. Úkraínumenn vilja nýta fenginn meðbyr og óttast að tímabundnar lausnir verði til þess að aðildarumsóknin sitji föst árum saman.

Share this article