Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin

Read Full Article →

Innlent | mbl | 24.4.2026 | 14:55 Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Samsett mynd/mbl.is/Ásdís/Colourbox Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Veður Allt að 13 stiga hiti fyrir sunnan Nærri tuttugu gráða hiti Víða bjartviðri en þokuloft vestan til Bongóblíða víða um land Hitinn gæti náð 14 stigum » Fleiri tengdar fréttir Lögreglu er heimilt að sekta ökumenn vegna notkunar nagladekkja og hefur verið það síðan 15. apríl en nagladekkjatímabilið svokallaða stendur frá 31. október til 15. apríl ár hvert skv. reglugerð. Heimilt er að sekta ökumenn um 20 þúsund krónur fyrir hvert dekk sem ekki er rétt búið. Útlit er fyrir prýðilegt veður um helgina en um miðja næstu viku er spáð skúrum og slydduéljum. Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að þá megi allt eins búast við éljum uppi á heiðum vestantil og þá gætu skapast erfiðari aðstæður uppi á heiðum. Haraldur segir þá að um aðra helgi horfi jafnvel til þess að hann snúist í norðanátt og þá megi búast við einhverjum kulda fyrir norðan. „Seinni partinn í næstu viku gæti orðið einhver éljagangur á heiðum,“ segir Haraldur en slær þann varnagla að spáin sé svolítið langt fram í tímann. Frétt af mbl.is Næsti lausi tími er 12. maí Nema akstursaðstæður krefjist þess Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að reglugerðin tali um aðstæður. Lögregla hafi alltaf tekið þann pólinn í hæðina að sjá hvernig veðurspá og öðru fram vindur. „Ég vil taka það skýrt fram að lögreglan setur ekki lög en okkur er gert að framfylgja lögum og reglum. Þegar orðalagið er svona þá er það alveg augljóst að það er orðið dálítið erfitt ef fólk t.d. segir: „heyrðu, ég er að fara norður og þarf að fara yfir vegi þar sem eru heiðar og nú eru aðstæður þannig að... og af því að reglugerðin segir það, þá máttu bara vera á nagladekkjum,“ segir Árni og bætir við að orðalagið banni notkun nagladekkja nema akstursaðstæður krefjist þess að slíkur búnaður sé notaður. „Ef snjór eða ísing er á vegi eftir 15. apríl þá er ekki heimilt að sekta fyrir brot gegn framangreindri reglugerð eins og ákvæði 6. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar ber með sér,“ vitnar hann beint í reglugerðina. Árni segir því ágætis skýringu að ef fólk er að sækja bæði læknisþjónustu eða er á öðrum ferðalögum þar sem keyra þurfi yfir t.d. Holtavörðuheiði eða Hellisheiði að það þurfi að vera á nöglum ef aðstæður krefjast þess. „Það er náttúrulega ekki alltaf hægt að miða bara við 101 Reykjavík. Við verðum að horfa bæði til vesturs og austurs og að þetta sé orðið eitt atvinnusvæði. M.a.s. eru margir lögreglumenn sem búa á Selfossi og á því svæði sem keyra yfir Hellisheiðina. Það getur verið hálka þar þótt það sé ekki hálka hérna í bænum.“ Frétt af mbl.is „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ Báðir hafa svolítið til síns máls Árni segist skilja málflutning fólks sem segir: „Jæja, það er 15. apríl og nú þurfa öll nagladekk að fara af bílum.“ Miðað við það sem nagladekk geri þurru malbiki, rífa og tæta það upp og mynda svifryk sem ekki sé gott. Á móti komi fólk sem sé að fara yfir Hellisheiði eða Holtavörðuheiði þegar kannski er von á snjó og ísingu. Þá sé það öryggismál sömuleiðis. „Báðir hópar hafa svolítið til síns máls og svo lendum við í lögreglunni svolítið þarna á milli.“ En hversu lengi fram á sumarið sýnir lögregla umburðarlyndi fyrir nagladekkjum? Við höfum nú alveg fengið hret í júní. „Það er ákall frá okkur í lögreglunni að fólk fari að bregðast við og panti tíma eða fari í biðröð. Það eru fjölmörg verkstæði sem taka ökutæki inn af götunni og biðtími hefur verið svona frá 30-60 mínútur. Við förum hvað og hverju, kannski í næstu viku, að skoða hvernig staðan er þá. Við verðum að horfa á hvernig veðrið er á suðvesturhorninu þar sem við erum. Ég get ekki svarað fyrir það hvernig t.d. lögreglan á Norðurlandi eystra vinnur. Það er bara sjálfstætt lögregluembætti sem er með Húsavík og nær alveg norður á Raufarhöfn. Það getur verið snjór og vetrarfæri þar eins og á Mývatnsöræfum. Reykjanesbraut milli Keflavíkur og Reykjavíkur er bara allt annað dæmi. Í lok maí get ég alltaf sagt að það þarf enginn að vera á nagladekkjum til að fara til Keflavíkur en ef einhverjir eru að fara norður og þurfa að keyra að Mývatnsöræfum, þá getur vel verið að nagladekk þurfi í það. Lögregla hefur afskipti af ökumanni. mbl.is/Eggert Jóhannesson Frétt af mbl.is Förin eru hættuleg Fólk á ekki að þurfa að nota nagladekk í júní, júlí og ágúst Gæti lögreglan á höfuðborgarsvæðinu horft í gegnum fingur sér með slíkt í einstaka tilfellum? „Já já, við skoðum bara hvert tilfelli fyrir sig. Þ að sem er hægt að segja er að í júní, júlí og ágúst er eiginlega nokkurn veginn öruggt að fólk á ekki að þurfa að nota nagladekk.“ Árni bendir einnig á að h ámarkshraði á vegum á Íslandi sé mestur 90 km/klst miðað við bestu aðstæður. Snjór eða hálka séu ekki bestu aðstæður. „Við verðum að setja ábyrgðina svolítið á ökumennina sjálfa. Ef þú ert að keyra á ónegldum dekkjum í Reykjavík í 12 stiga hita, ferð svo yfir Holtavörðuheiðina þar sem kannski er mínus 1 gráða og einhverjir hálkublettir, þá gefur það auga leið að þú þarft að hegða þér öðruvísi. Það sem ég er að segja er að ábyrgð ökumanna er gríðarlega mikil og menn gleyma því stundum.“ Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Ásdís Tengdar fréttir Veður Allt að 13 stiga hiti fyrir sunnan Nærri tuttugu gráða hiti Víða bjartviðri en þokuloft vestan til Bongóblíða víða um land Hitinn gæti náð 14 stigum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Flóni og Alaska eru par Besta sóknin að mæta bestu vörninni Innkalla hakk vegna gruns um salmonellu Liðstyrkur til nýliðanna Umræðan Sterkur bær, björt framtíð Íslensk hagfræði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Forsetinn hjálpaði Loga að landa fundinum Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Hjón á áttræðisaldri drepin í drónaárás Mest lesið Í gær Í vikunni Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Ekið á konu á gangi við Skógarveg Hafa hótað og áreitt starfsfólk Grunuð um að hafa kveikt á blysi í íbúð Bjóða óvænt leikskólapláss sem ekki voru laus Allt að 13 stiga hiti fyrir sunnan Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Auddi og Rakel opna dyrnar Nýjast á mbl.is » Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Flóni og Alaska eru par Besta sóknin að mæta bestu vörninni Innkalla hakk vegna gruns um salmonellu Liðstyrkur til nýliðanna Umræðan Sterkur bær, björt framtíð Íslensk hagfræði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hjón á áttræðisaldri drepin í drónaárás Skólamál, uppbygging og samgöngur í brennidepli Ekið á konu á gangi við Skógarveg Hafa hótað og áreitt starfsfólk Mest lesið Í gær Í vikunni Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Ekið á konu á gangi við Skógarveg Hafa hótað og áreitt starfsfólk Grunuð um að hafa kveikt á blysi í íbúð Bjóða óvænt leikskólapláss sem ekki voru laus Allt að 13 stiga hiti fyrir sunnan Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Auddi og Rakel opna dyrnar

Share this article