- What: A study suggests the Atlantic Meridional Overturning Circulation is weakening.
- Impact: Could have wide-ranging effects on climate and weather patterns.
200 mílur | Morgunblaðið | 24.4.2026 | 15:30 Veltihringrásin nálgast vendipunkt AMOC Veltihringrás Atlantshafsins flytur m.a hlýtt loft til norðurs og hefur afgerandi áhrif á hitastig, úrkomu og veðurkerfi, ekki síst í Evrópu. Morgunblaðið/Óskar Pétur Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Ný alþjóðleg rannsókn bendir til þess að hægst gæti á veltihringrás Atlantshafsins, AMOC, um helming fyrir lok þessarar aldar. Niðurstöðurnar, sem birtar eru í vísindaritinu Science Advances , eru enn svartsýnni á stöðuna en fyrri loftslagslíkön hafa gefið tilefni til. Reynist vísindamennirnir sannspáir gæti það haft víðtækar afleiðingar fyrir loftslagið og samfélög víða um heim, ekki síst í Evrópu. AMOC er stórt kerfi hafstrauma sem flytja hlýtt og salt yfirborðsvatn frá hitabeltinu norður í Atlantshafið. Þar losar vatnið hita upp í andrúmsloftið en í kjölfarið kólnar það, þéttist og sekkur áður en það rennur aftur suður á bóginn. Þessi hringrás gegnir veigamiklu hlutverki í að dreifa hita um jörðina og hefur afgerandi áhrif á hitastig, úrkomu og veðurkerfi víða, meðal annars í Evrópu. Mun veikjast um 42–58% Vísindamenn hafa lengi vitað að hægst hefur á veltihringrásinni, en hún er í dag talin vera á sínum veikasta punkti í 1600 ár. Fram til þessa hafa loftslagslíkön þó skilað afar mismunandi framtíðarspám. Niðurstöður þeirra rannsókna spanna allt frá því að engin breyting muni verða á straumnum til þess að hægjast muni á honum um 65% fyrir árið 2100. Frétt af mbl.is Öryggishætta en ekki lengur fjarlæg sviðsmynd Frétt af mbl.is Engar breytingar á AMOC-straumi Í nýju rannsókninni var reynt að skera úr um hvaða líkön gætu komist næst því að reynast sannspá. Í því skyni að draga úr skekkjumörkum sameinuðu rannsakendur raunmælingar úr hafinu og niðurstöður mismunandi loftslagslíkana. Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að allar líkur séu á að veltihringrásin muni veikjast um helming fyrir lok aldarinnar, eða á bilinu 42–58%. Er það töluvert svartari spá en áður. Ein ástæða þess að vísindamennirnir telja nýju rannsóknina komast nær nákvæmari niðurstöðu er sögð vera að fyrri líkön hafi vanmetið áhrif ákveðinna þátta. Sérstaklega mun þáttur yfirborðsseltu í Suður-Atlantshafi hafa verið vanmetinn en nýlegar rannsóknir undirstrika að hún hafi töluverð áhrif á veltihringrásina. Í greininni í Science Advances kemur fram að seltu- og hitabreytingar ráða miklu um áðurnefndan „þéttleika“ (e. density) sjávar, sem aftur hefur bein áhrif á styrk straumsins. Nálægt vendipunkti Niðurstöðurnar gefa sterklega til kynna að AMOC gæti verið nær vendipunkti en áður var talið. Verði farið yfir þann þröskuld getur það valdið hröðum og jafnvel óafturkræfum breytingum í loftslagskerfinu. Breytingar á hitadreifingu í Atlantshafi geta haft áhrif á loftslag í Evrópu, valdið breytingum á úrkomumynstri og haft áhrif á hafstrauma og vistkerfi. Hér getur að líta tímaraðir fyrir AMOC, sem og sögulegar spár og framtíðarspár fyrir AMOC út frá loftslagslíkönum. Þó að rannsóknin fari ekki ítarlega yfir þau samfélagslegu áhrif sem hnignun hringrásarinnar gæti leitt af sér er þó ljóst að slík þróun gæti haft víðtæk áhrif á landbúnað, vatnsauðlindir og lífsskilyrði milljóna manna. Vísindamenn segja að ljóst sé að hættan á meiri og hraðari breytingum í hafstraumum sé raunveruleg en leggja áherslu á að niðurstöðurnar kalli á frekari rannsóknir. Þeir segja að einn stærsti óvissuþátturinn þegar kemur að spám um framtíð AMOC sé í raun ekki mismunandi sviðsmyndir um losun gróðurhúsalofttegunda, heldur hreinlega munur á loftslagslíkönunum sjálfum. Þetta er sagt undirstrika mikilvægi þess að bæta líkönin og nýta betur raunmælingar til að draga úr óvissuþáttum og kalla fram áreiðanlegri framtíðarspár. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Lax á kókaíni syndir linnulaust Gísli Jóns er núna Kristrún Kadis sýnir á spilin hjá Evrópusambandinu Þróun Sundahafnar flækist Ankeri opnar nýja skrifstofu í Singapúr Sjötugur og gerir út á eikarbát Bjóða upp á íslenskar kræsingar í Barselóna „Við erum B-ið á milli A og C“ Drógu aflvana bát til lands Nýjar eldvarnavörur auka öryggi á sjó Sjötugur og gerir út á eikarbát „Við erum B-ið á milli A og C“ Bjóða upp á íslenskar kræsingar í Barselóna Nýjar eldvarnavörur auka öryggi á sjó Ráðleggur um fjórðungi minni hvalveiðikvóta KAPP og Laxey skrifa undir samning Sækir þekkingu fyrir fiskeldi í Úganda Ráðherra mættur til Barselóna Velta eykst mikið í bílasölu og sjávarútvegi Hvalavinir skora á Hönnu Katrínu Franskur sjómaður fær ekki að sigla Veiðar á langreyði áformaðar í sumar „Þú hefir drjúgast drukkið Íslands blóð“ Sjötugur og gerir út á eikarbát Töf á viðkomu í Vestmannaeyjum „Veiðarnar eru orðnar óskaplega óhagkvæmar“ Ráðherra mættur til Barselóna Lax á kókaíni syndir linnulaust Bjóða upp á íslenskar kræsingar í Barselóna Velta eykst mikið í bílasölu og sjávarútvegi Fleira áhugavert Hafa hótað og áreitt starfsfólk Hermaður sagður hafa veðjað á handtöku Maduros Ekið á gangandi vegfaranda Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 24.4.26 609,22 kr/kg Þorskur, slægður 24.4.26 736,14 kr/kg Ýsa, óslægð 24.4.26 274,61 kr/kg Ýsa, slægð 24.4.26 314,88 kr/kg Ufsi, óslægður 24.4.26 222,73 kr/kg Ufsi, slægður 24.4.26 322,38 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 24.4.26 173,62 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 23.4.26 34,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 24.4.26 Sólon KE 212 Handfæri Þorskur 873 kg Samtals 873 kg 24.4.26 Sindri BA 24 Grásleppunet Grásleppa 520 kg Þorskur 43 kg Skarkoli 10 kg Samtals 573 kg 24.4.26 Sunna Líf GK 61 Þorskfisknet Þorskur 317 kg Skarkoli 28 kg Samtals 345 kg 24.4.26 Séra Árni GK 135 Handfæri Þorskur 1.608 kg Samtals 1.608 kg 24.4.26 Fengsæll HU 56 Grásleppunet Grásleppa 221 kg Skarkoli 26 kg Samtals 247 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Lax á kókaíni syndir linnulaust Gísli Jóns er núna Kristrún Kadis sýnir á spilin hjá Evrópusambandinu Þróun Sundahafnar flækist Ankeri opnar nýja skrifstofu í Singapúr Sjötugur og gerir út á eikarbát Bjóða upp á íslenskar kræsingar í Barselóna „Við erum B-ið á milli A og C“ Drógu aflvana bát til lands Nýjar eldvarnavörur auka öryggi á sjó Sjötugur og gerir út á eikarbát „Við erum B-ið á milli A og C“ Bjóða upp á íslenskar kræsingar í Barselóna Nýjar eldvarnavörur auka öryggi á sjó Ráðleggur um fjórðungi minni hvalveiðikvóta KAPP og Laxey skrifa undir samning Sækir þekkingu fyrir fiskeldi í Úganda Ráðherra mættur til Barselóna Velta eykst mikið í bílasölu og sjávarútvegi Hvalavinir skora á Hönnu Katrínu Franskur sjómaður fær ekki að sigla Veiðar á langreyði áformaðar í sumar „Þú hefir drjúgast drukkið Íslands blóð“ Sjötugur og gerir út á eikarbát Töf á viðkomu í Vestmannaeyjum „Veiðarnar eru orðnar óskaplega óhagkvæmar“ Ráðherra mættur til Barselóna Lax á kókaíni syndir linnulaust Bjóða upp á íslenskar kræsingar í Barselóna Velta eykst mikið í bílasölu og sjávarútvegi Fleira áhugavert Flokka Atlantshafsbandalagsríki í „góð“ og „slæm“ Forsetinn hjálpaði Loga að landa fundinum Hermaður sagður hafa veðjað á handtöku Maduros Hjón á áttræðisaldri drepin í drónaárás Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 24.4.26 609,22 kr/kg Þorskur, slægður 24.4.26 736,14 kr/kg Ýsa, óslægð 24.4.26 274,61 kr/kg Ýsa, slægð 24.4.26 314,88 kr/kg Ufsi, óslægður 24.4.26 222,73 kr/kg Ufsi, slægður 24.4.26 322,38 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 24.4.26 173,62 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 23.4.26 34,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 24.4.26 Sólon KE 212 Handfæri Þorskur 873 kg Samtals 873 kg 24.4.26 Sindri BA 24 Grásleppunet Grásleppa 520 kg Þorskur 43 kg Skarkoli 10 kg Samtals 573 kg 24.4.26 Sunna Líf GK 61 Þorskfisknet Þorskur 317 kg Skarkoli 28 kg Samtals 345 kg 24.4.26 Séra Árni GK 135 Handfæri Þorskur 1.608 kg Samtals 1.608 kg 24.4.26 Fengsæll HU 56 Grásleppunet Grásleppa 221 kg Skarkoli 26 kg Samtals 247 kg Skoða allar landanir »