Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Nokkurra bíla árekstur á Reykjanesbraut

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 29 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Nokk­urra bíla árekst­ur á Reykja­nes­braut Ásrún Aldís Hreinsdóttir RÚV / Ragnar Visage Nokkurra bíla árekstur varð á Reykjanesbraut fyrir skemmstu. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu skullu þrír til fimm bílar saman. Einn sjúkrabíll og dælubíll voru sendir á vettvang en ekki er talið að alvarleg meiðsl hafi orðið á fólki en einn er slasaður. Dælubíll var sendur á vettvang til þess að hreinsa brak af brautinni. Samkvæmt Guðjóni Ingasyni, varðstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, varð einnig minniháttar olíuleki. Fyrir 43 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Tveir helstu samn­inga­menn Banda­ríkj­anna á leið til fundar við ut­an­rík­is­ráð­herra Írans Bandaríkjaforseti kveðst hafa sent helstu samningamenn sína til Pakistan til viðræðna við utanríkisráðherra Írans um helgina. Varaforseti Bandaríkjanna og forseti íranska þingsins hafa ekki boðað komu sína. Olíuverð lækkaði við tíðindin. Fyrir 43 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Pólland Orr­ustu­þot­ur höfðu af­skipti af rúss­nesk­um her­þot­um innan loft­helg­inn­ar Markús Þ. Þórhallsson Pólskar orrustuþotur höfðu afskipti af tveimur rússneskum herþotum innan lofthelginnar yfir Eystrasalti. F16 orrustuþota pólska flughersins. EPA / JAKUB KARCZMARCZYK Aðstoðarvarnarmálaráðherrann Cezary Tomczyk greindi frá þessu í færslu á X án þess að tilgreina hvenær atvikið varð né hve margar pólskar þotur voru sendar á loft. Hann sagði Atlantshafsbandalagið bregðast umsvifalaust við öllum öryggisbrotum Rússa í lofthelgi Póllands og annarra aðildarríkja. Pólskar herþotur höfðu afskipti af rússneskri njósnaflugvél innan lofthelginnar fyrir rúmum hálfum mánuði. Þá sagði varnarmálaráðherrann Wladyslaw Kosiniak-Kamysz Rússa viðhafa ögrunartilburði til að reyna á varnarviðbúnað Póllands. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Heg­seth segir Írana hafa sögu­legt tæki­færi til sam­komu­lags við Banda­rík­in Stríðsmálaráðherra Bandaríkjanna segir réttast og skynsamlegast fyrir Írana að semja við Bandaríkin um vopnahlé hið fyrsta. Hann segir stríðið gegn Íran guðsgjöf til veraldarinnar og gagnrýnir Evrópuríki fyrir linkind og skort á liðsinni í stríðinu. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Frjálsar Guðrún Karí­tas bætti Ís­lands­met­ið á ný og náði í EM lág­mark Sleggjukastarinn Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir bætti Íslandsmetið í sleggjukasti enn eina ferðina í dag og er nú komin með lágmark á Evrópumeistaramótið í Birmingham í sumar. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Starfs­fólk N1 slökkti sinu­eld skammt frá bens­ín­stöð­inni Sinueldur kviknaði við N1 í Fossvogi. Starfsfólk bensínstöðvarinnar hafði þegar slökkt eldinn er slökkvilið bar að garði. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Leikskólar Leik­skóla­pláss losna óvænt í Vest­ur­bæn­um Vegna seinkunar á framkvæmdum á leikskólanum Sæborg í Vesturbæ Reykjavíkur losna um fimmtán pláss í innritun leikskólans í haust. Beiðnir um breytingar á umsóknum um leikskóla þurfa að berast fyrir mánaðarlok. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tveir Ís­lend­ing­ar týndir á er­lendri grundu í níu mánuði Tveggja Íslendinga hefur verið saknað frá því í ágúst 2025. Annar þeirra hvarf á Spáni en hinn í Búlgaríu. Embætti ríkislögreglustjóra segir engar nýjar vendingar í málunum tveim. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Glódís í Meist­ara­deild­inni: „Maður hefur aldrei verið eins nálægt stóra mark­mið­inu“ Glódís Perla Viggósdóttir og liðsfélagar hennar í Bayern München mæta Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Fyrri leikur liðanna er á morgun en Glódís segir það risaskref fyrir sig og félagið að vera komið í undanúrslit. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Flokk­ur fólks­ins kynnir áherslu­mál­in í borg­inni Flokkur fólksins kynnti þau mál sem flokkurinn leggur áherslu á í komandi borgarstjórnarkosningum í Tjarnarbíói í dag. Oddviti flokksins segist vilja leggja áherslu á velferðarmál. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Bíða með leit að ferða­manni Ásrún Aldís Hreinsdóttir Leit að erlendum ferðamanni við Háafoss í Þjórsárdal er ekki hafin að nýju. Leit var frestað á miðvikudagskvöld og hafði hún þá staðið yfir í rúman sólarhring. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi er leitarsvæðið hættulegt. Mikill krapi og drulla er við Háafoss og eru aðstæður krefjandi. Vísbendingar skortir til að halda leit áfram. Staðan verður metin aftur eftir helgi. Ferðamaðurinn skilaði sér ekki á gististað fyrr í vikunni og var því haft samband við lögreglu sem kallaði eftir aðstoð björgunarsveita og Landhelgisgæslu. Bíll sem maðurinn var á fannst í grennd við fossinn. RÚV / Ferðastiklur Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Þýska­landskansl­ari segir enga flýti­með­ferð til ESB-að­ild­ar í boði fyrir Úkra­ínu Þýskalandskanslari segir ekkert útlit fyrir að Úkraínumenn fái flýtimeðferð í aðildarviðræðum að Evrópusambandinu en leggur til að þeim verði veittur aðgangur að fundum þess án atkvæðaréttar. Úkraínuforseti vill ekki fallast á tímabundnar lausnir. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Einar Már hlaut verð­laun Jóns Sig­urðs­son­ar Verðlaun Jóns Sigurðssonar voru veitt við hátíðlega athöfn í Kaupmannahöfn í gær, sumardaginn fyrsta. Verðlaunin eru veitt fólki sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Fisk­eld­is­styrk­ur nýttur í að kynda Fjarða­byggð­ar­höll­ina Fiskeldissjóður hefur úthlutað rúmum hálfum milljarða króna til innviðaframkvæmda í sex sveitarfélögum. Í Fjarðabyggð verða fjármunir nýttir til kynda og lýsa fótboltahöll á Reyðarfirði en orkan kemur frá sólarsellum og úr viðarperlum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Orku­veit­an fær styrk upp á 1,5 millj­arð til djúpnýt­ing­ar á „of­ur­heit­um“ jarð­hita Búið er að sýna fram á að „ofurheitur“ jarðhiti er til staðar undir yfirborðinu á athafnasvæði Orkuveitunnar en næsta skref er að leysa tæknilegar áskoranir. Tilraunaborun verður gerð síðla árs. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Sanchez óttast ekki hót­an­ir Trumps um brott­rekst­ur Spánar úr NATÓ Bandaríkjaforseti vill reka Spán úr NATÓ, endurskoða afstöðuna til þess að Falklandseyjar séu yfirráðasvæði Breta og fleira þvílíkt ef marka má minnisblað þess efnis. Forsætisráðherra Spánar segist áhyggjulaus, Spánn sé tryggur meðlimur NATÓ. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Að­stoð­uðu skip­stjóra sem fékk veið­ar­færi í skrúf­una Það þótti vissara að bregðast skjótt við eftir að útkall um vélarvana bát barst þrátt fyrir hæglætisveður, enda báturinn ekki langt frá landi. Björgunarskipið Vörður II dró fiskibátinn til hafnar á Patreksfirði. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlistargagnrýni Tón­list til að sigra við: Hver er númer eitt? Nýjasta plata Herra Hnetusmjörs, Tónlist til að sigra við, fær fjórar stjörnur frá Arnari Eggert Thoroddsen sem er gagnrýnandi Plötu vikunnar á Rás 2. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Starfs­fólk MAST beitt of­beldi og hótað: „Ég veit hvar þú býrð“ Yfirdýralæknir Matvælastofnunar segir það hafa færst í aukana að starfsfólk sé áreitt og jafnvel beitt ofbeldi við eftirlitsstörf og fjölskyldum þess hótað. Dæmi eru um að starfsfólki hafi verið hrint og það barið. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stóriðja Stefnt á fulla fram­leiðslu í ál­ver­inu á Grund­ar­tanga í lok júlí Framleiðsla er hafin að nýju í annarri af tveimur kerlínum Norðuráls á Grundartanga. Forstjórinn á von á að álverið verði komið í fulla framleiðslu í lok júlí. „Þetta er mun fyrr en áætlað var,“ segir forstjóri Norðuráls. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rússland Seðla­bank­inn lækkar vexti um hálft pró­sentu­stig — litlum hag­vexti spáð áfram Markús Þ. Þórhallsson Seðlabanki Rússlands hefur lækkað stýrivexti um hálft prósentustig, úr 15 af hundraði niður í 14,5. Vladimír Pútín varaði við litlum hagvexti á árinu. EPA / MIKHAIL METZEL / SPUTNIK / KREMLIN POOL Tilkynning þess efnis barst í morgun, fáeinum dögum eftir að forsetinn Vladimír Pútín sagði að dregið hefði úr hagvexti í landinu. Seðlabankinn kvaðst í tilkynningu óttast að verðbólga kynni að aukast verulega á næstunni. Hagvöxtur jókst aðeins um eitt prósent á síðasta ári og stjórnvöld búast við litlum sem engum vexti á þessu ári. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ekkert spurst til Ís­lend­ings í Búd­a­pest í nær tvær vikur Ekkert hefur spurst til Íslendings á sextugsaldri í nær tvær vikur. Síðast sást til hans yfirgefa flugvöll í Búdapest. Sonur hans segir föður sinn hafa verið ringlaðan og ekki hafa litið vel út skömmu áður en hann hvarf. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Jón Atli rit­stýr­ir bóka­út­gáfu stærstu sam­taka tækni­mennt­aðra í heim­in­um Grétar Þór Sigurðsson Jón Atli var rektor Háskóla Íslands frá 2015 til 2025. RÚV / Ragnar Visage Jón Atli Benediktsson, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði og fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, hefur tekið við sem aðalritstjóri bókaútgáfu Institute of Electrical and Electronics Engineers (IEEE). Það eru stærstu samtök tæknimenntaðra í heiminum og aðildarfélagar eru yfir 500 þúsund. Frá þessu er greint á vef Háskóla Íslands. Jón Atli hefur setið í ritstjórn IEEE Press frá 2020 en varð ritstjóri um áramót. Bókaútgáfan annast útgáfu fræðibóka um nýjustu strauma og stefnur í rafmagnsverkfræði, tölvunarfræði og tengdum greinum. IEEE Press gefur út á bilinu 75 til 100 bækur á ári. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Hákon Rafn fram­leng­ir hjá Brent­ford til ársins 2030 Helga Margrét Höskuldsdóttir Landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarliðið Brentford. Þessu greindi félagið frá á miðlum sínum í morgun. Hákon Rafn skrifaði árið 2024 undir samning til ársins 2028. Nú hefur samningur hans verið framlengdur til ársins 2030. Hákon Rafn er ánægður hjá enska úrvalsdeildarliðinu Brentford. IMAGO / Action Plus Hann hefur á þessum tím

Share this article