Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News RÚV

Örkuðu yfir Öxi og krefjast samgöngubóta

  • What: A group of teenagers is protesting poor road conditions over Öxi
  • Impact: Local residents are affected by the poor road quality
Read Full Article →

„Við erum bara að labba Öxi til að vekja athygli á að það þarf að laga þennan veg. Við viljum að það sé heilsársvegur yfir Öxi,“ segir Kolfinna Ásta Jónsdóttir, 15 ára Djúpavogsbúi. Kolfinna gekk yfir Öxi í dag ásamt fleiri stelpum í 10. bekk á Djúpavogi. Þær krefjast samgöngubóta til Egilsstaða. Næsta haust verða 30 krakkar frá Djúpavogi í Mennaskólanum þar og þeim líst illa á að keyra brattan og holóttan veginn þegar þær fá bílpróf. „Það eru rosalega margar holur og það er bara erfitt að keyra hann,“ segir Kolfinna. Vegurinn yfir Öxi á milli Egilsstaða og Djúpavogs er gamall malavegur og lokast stóran hluta vetrar. Það er mikið baráttumál fyrir íbúa á Djúpavogi og Egilsstöðum að gerður verði heilsársvegur en hann myndi stytta leiðina um tæpa 70 kílómetra og hringveginn einnig.

Share this article