Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Skattur á viðskipti Íslands við umheiminn

  • What: Discussion on ETS and its impact on Iceland
  • Impact: Economic and environmental implications for Iceland
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 25.4.2026 | 17:02 Skattur á viðskipti Íslands við umheiminn ETS skapar hvata sem eiga ekki við á Íslandi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Í óbreyttri mynd grefur ETS-kerfið undan samkeppnishæfni Íslands og vinnur gegn grunnmarkmiðum EES-samningsins. Þetta segir Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs. Að undanförnu hefur ETS-kerfið verið í deiglunni bæði á Íslandi og á meginlandi Evrópu, en á umhverfisráðstefnu í Berlín á miðvikudag sagði Friedrich Merz Þýskalandskanslari að loftslagsaðgerðir á borð við ETS mættu ekki hafa þau áhrif að veikja iðnað í álfunni. Georgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, hefur tekið í svipaðan streng og hafa leiðtogarnir talað fyrir því að tímabært sé að endurskoða viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir. Áhrif ETS á farþegaflug og skipaflutninga til og frá Íslandi þykja sérstakt áhyggjuefni: „Kerfinu er ætlað að skapa hvata fyrir fólk og fyrirtæki á meginlandi Evrópu að velja vistvænni samgöngumáta, s.s. með því að taka lest frekar en að fljúga, en þessi hvati virkar ekki á Íslandi, og þannig er ekki tekið tillit til sérstöðu Íslands sem eyríkis langt frá meginlandinu,“ segir Ragnar. „Eins og staðan er núna eru engar raunhæfar leiðir í boði til að skipta út jarðefnaeldsneyti í flugi og skipaflutningum og því virkar ETS í raun bara sem skattur á íslenska hagkerfið.“ Ragnar bendir á að í tilviki skipaflutninga ýti ETS undir verðbólgu í gegnum hækkaðan flutningskostnað, en í farþegafluginu minnki ETS samkeppnishæfni grunnatvinnugreinar. „Ekki er nóg með að flugmiðarnir verði dýrari heldur má búast við því að ef grafið er undan samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar í flugi muni tengingum við landið fækka til lengri tíma litið, sem kemur til með að skerða lífsgæði Íslendinga.“ Eins og fyrr segir lítur Ragnar svo á að ETS-kerfið stangist í raun á við eitt af grunnmarkmiðum EES-samningsins, enda virki kerfið eins og skattur á viðskipti Íslands við umheiminn. „Kjarninn í EES er að jafn grundvöllur sé í viðskiptum á milli aðildarlanda en Ísland geldur fyrir landfræðilega legu innan ETS-kerfisins.“ Ragnari þykja ummæli Merz að undanförnu mjög áhugaverð, en Evrópusambandið hefur upplýst að unnið sé að endurskoðun á ETS-kerfinu. Kerfið hefur verið gagnrýnt fyrir að hafa mjög neikvæð áhrif á evrópskan iðnað: Iðnaður Evrópu í vanda „Talsmenn ETS hafa bent á þann ávinning að mjög hafi dregið úr losun frá iðnaði í Evrópu frá því að kerfið var kynnt til sögunnar. En það segir bara hálfa söguna því minnkaða losun má að verulegu leyti skýra með því að iðnaður sem áður var í Evrópu hefur einfaldlega færst til annarra landa,“ segir Ragnar. „Gallinn við ETS er að kerfið er í eðli sínu evrópsk lausn á hnattrænum vanda, og með því að skattleggja losun frá sínum iðnaði og orkuverum hefur samkeppnishæfni iðnaðar í Evrópu dregist verulega saman. Iðnaðarstarfsemi í öðrum löndum hefur vaxið hraðar sem því nemur, en gallinn er sá að í þeim löndum er losunin á hverja framleidda einingu meiri en í Evrópu.“ Ragnar minnir á greinargóða skýrslu frá Eflu um samfélagsleg áhrif ETS-kerfisins, en þar var m.a. bent á hvernig álframleiðsla í Evrópu hefur átt í vök að verjast. „Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2008, skömmu eftir að ETS var komið á, hefur álframleiðsla í Evrópu dregist saman um 30% og frá aldamótum hefur hlutdeild Evrópu í heimsframleiðslu á ári lækkað úr 10% niður í 1%, en vöxturinn í framleiðslu áls hefur verið mikill utan álfunnar, í löndum eins og Kína og Indlandi þar sem losunin er miklu hærri enda orkan framleidd með óhreinni aðferðum.“ Íslenskur áliðnaður hefur sloppið nokkuð vel til þessa, í ljósi þess hvað íslensk raforka er græn, en skipa- og flugfélögin hafa getað nýtt sér fríkvóta til að létta byrðina af ETS. „En núna er verið að klára útfösun fríkvótanna: hjá flugfélögunum verður það gert í ár, og hjá skipaflutningafélögunum á næsta ári. Hjá álframleiðendum verður útfösunin komin hálfa leið árið 2030 og á þeim tímapunkti mun kostnaður íslenskra álfyrirtækja af ETS-greiðslum hafa hækkað sextánfalt.“ Viðbótartekjur fyrir ríkissjóð En hvert fara ETS-gjöldin? Ragnar segir greiðslurnar rata til Evrópusambandsins, sem heldur eftir hluta en lætur fjármunina renna að stærstu leyti aftur til þátttökuríkjanna. „ESB-ríkjunum er skylt að verja þessum tekjum af sölu loftslagsheimilda í loftslagsmál, en EES-samningurinn nær ekki yfir ráðstöfun opinbers fjármagns og því er ekki hægt að skylda íslensk stjórnvöld til að beina sínum skerf í tiltekin loftslagsverkefni. Er því einfaldlega um viðbótartekjur að ræða fyrir ríkissjóð.“ Að mati Ragnars væri skynsamlegri lausn í loftslagsmálum að gefa fyrirtækjum svigrúm til að fjárfesta í nýjum lausnum, í stað þess að leggja á þau byrðar í formi gjalda. „Það væri líklegra til árangurs í þessari grænu umbreytingu að skilja peninginn eftir inni í fyrirtækjunum svo að þau hafi getuna til að þróa og fjárfesta í leiðum til að gera starfsemi sína bæði hagkvæmari og umhverfisvænni.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Meistararnir með níu fingur á bikarnum Skattur á viðskipti Íslands við umheiminn Orbán ætlar að hætta á þingi Haukar knúðu fram hreinan oddaleik Arsenal - Newcastle, staðan er 1:0 Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Hafa hótað og áreitt starfsfólk „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð Mest lesið Í gær Í vikunni Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Sakar formanninn um leyndarhyggju Vendinga að vænta í veðrinu „Mér finnst þetta fáránlegt“ Vendinga að vænta í veðrinu Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Innkalla hakk vegna gruns um salmonellu Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Hafa hótað og áreitt starfsfólk Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Nýjast á mbl.is » Meistararnir með níu fingur á bikarnum Skattur á viðskipti Íslands við umheiminn Orbán ætlar að hætta á þingi Haukar knúðu fram hreinan oddaleik Arsenal - Newcastle, staðan er 1:0 Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Veltihringrásin nálgast vendipunkt Fjarskipti versnað mikið eftir brotthvarf 2G og 3G Mest lesið Í gær Í vikunni Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Sakar formanninn um leyndarhyggju Vendinga að vænta í veðrinu „Mér finnst þetta fáránlegt“ Vendinga að vænta í veðrinu Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Innkalla hakk vegna gruns um salmonellu Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Hafa hótað og áreitt starfsfólk Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin

Share this article