Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þrjú hundruð krítískir veikleikar

  • What: AI tools are being used to identify security flaws
  • Impact: Cybersecurity professionals are leveraging AI to detect vulnerabilities
Read Full Article →

Innlent | Sunnudagsblað | 25.4.2026 | 21:41 Þrjú hundruð krítískir veikleikar Theódór Gíslason hjá Defend Iceland notar nú gervigreindarlíkön í auknum mæli og segir þau byltingarkennd. mbl.is/Ásdís Ásdís Ásgeirsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Gervigreind Borðtennisvélmenni keppti við atvinnumann „Þetta er ár gervigreindarfulltrúanna“ Nýtt kerfi Anthropic afhjúpar veikleika Mál þýskrar sjónvarpsstjörnu veldur usla Gervigreindin verði „ráðin“ í venjuleg störf » Fleiri tengdar fréttir Í veröld gervigreindar gerast hlutirnir hratt og gervigreindarlíkön verða sífellt fullkomnari. Eitt af því sem þau geta gert er að finna og sanna öryggisveikleika í tölvukerfum og hugbúnaði. Theódór Ragnar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Defend Iceland, notar gervigreindarlíkön í auknum mæli til að koma auga á veikleikana til að geta komið í veg fyrir netárásir sem geta valdið miklum skaða. Tólf hundruð veikleikar Fyrir tveimur árum var Defend Iceland með nokkra heiðarlega hakkara á sínum snærum en í dag eru yfir tvö hundruð Íslendingar og yfir hundrað útlendingar skráðir hjá þeim. Til útskýringar eru heiðarlegir hakkarar ekki starfsmenn fyrirtækisins heldur alls kyns fólk sem finnur veikleika í tölvukerfum, bendir á þá og fær viðurkenningu og mögulega umbun fyrir. „Þeir hafa umboð til að leita að öryggisveikleikum hjá aðilum sem eru í viðskiptum hjá okkur. Ef til dæmis veikleiki finnst hjá Morgunblaðinu, er hægt að tilkynna það til okkar og við greinum veikleikann og metum áhrif. Ef veikleikinn er svo staðfestur og álitinn alvarlegur geta viðskiptavinir borgað allt upp í hálfa milljón fyrir alvarlega veikleika,“ segir Theódór, en þjónusta þessi nefnist villuveiðigátt. Nú er komin tveggja ára reynsla og sífellt fjölgar tilkynningunum. Gervigreindarmódel finna nú meirihlutann af veikleikum í tölvukerfum. Colorbox „Yfir tólf hundruð veikleikar hafa verið tilkynntir, þar af þrjú hundruð krítískir. Framan af voru mállíkön komin út og við þróuðum strax okkar eigin gervigreindarhakkara en líkönin voru þá ekki nógu góð til að keppa við fólk. En þetta hefur þróast brjálæðislega hratt og fljótlega fórum við að sjá að líkönin með góðu samskiptalagi og fulltrúum gætu fundið veikleika upp á sitt eindæmi, með einföldum fyrirmælum manneskju,“ segir hann. „Þetta verður betra og betra með hverju nýju módeli og útgáfum. Í fyrra varð mikil fjölgun á tilkynningum um öryggisveikleika hjá okkur sem voru augljóslega veikleikar fundnir með aðstoð gervigreindar. Stóra breytingin var svo þegar nýtt módel frá Anthropic kom út í ár sem nefnist Opus 4.6. Það var gefið út með fáum takmörkunum, þannig að það var tilbúið að aðstoða við að finna áður óþekkta veikleika sem væri hægt að nýta til að brjótast inn. Og það varð sprenging í tilkynningum frá okkar heiðarlegu hökkurum eftir að þeir og við fórum að beisla þetta nýja módel. Oft fundust svakalega krítískir veikleikar sem hefðu annars getað valdið stórtjóni eða jafnvel gagnagíslatökum. Núna kemur um það bil helmingur af öllum veikleikum, sem eru tilkynntir til okkar, að einhverju leyti með aðstoð gervigreindar. Það er spennandi að upplifa hvernig þetta er að breytast og á sama tíma er það ógnvekjandi.“ Nýtist heilu samfélagi Defend Iceland er nú komið í útrás, en ellefu starfsmenn eru hér heima og tveir í Danmörku. „Við stofnuðum Defend Denmark á síðustu mánuðum og er það að vaxa hraðar en við gerðum upprunalega á Íslandi. Við stofnuðum það með einum af okkar dönsku hökkurum sem var að finna fullt af veikleikum hjá íslenskum fyrirtækjum sem leyfðu það. Hann langaði að gera það sama í Danmörku og erum við nú komin með krítíska innviði í Danmörku sem viðskiptavini. Það gengur mjög vel. Þetta er fólk sem er annt um Danmörku og dönsku hakkararnir eru orðnir um hundrað en við gerum ráð fyrir að þeir verði um þúsund eftir eitt ár. Þetta er fólk á öllum aldri og þarna eru meðal annars nokkrir afar og margir nemar. Við búum til þennan vettvang í gegnum íslenska nýsköpun til að gefa þessum aðilum, sem þykir vænt um samfélagið sitt, tækifæri til að auka öryggi þess,“ segir hann. „Við vorum að fá styrk frá þjóðaröryggisstofnun Noregs fyrir verkefni sem heitir Defend the Grid og snýr að orkuframleiðendum á Norðurlöndunum. Það er nóg að gera,“ segir Theódór og nefnir að Defend Iceland hafi áður fengið tvær og hálfa milljón evra í styrk frá Evrópusambandinu til að þróa þessa samfélagsdrifnu villuveiðigátt á Íslandi. „Áður en við komum til leiks nýttust villuveiðigáttir nánast eingöngu ríkustu fyrirtækjum í heimi. Stóru fyrirtækin hafa notað þetta í rúmlega tíu ár en við fengum styrkinn til að sjá hvort þetta gæti nýst heilu landi eða samfélagi. Við erum handviss um að okkar hakkarar hafi stuðlað að auknu öryggi Íslands. Við vitum að þeir hafa komið í veg fyrir gríðarlega alvarlega öryggisbresti, meðal annars hjá Landspítalanum okkar,“ segir hann. „Við erum nú að keyra þessa vöru okkar til Evrópu, hægt og rólega, og byrjum á Norðurlöndunum.“ Ítarlegt viðtal við Theódór er í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Tengdar fréttir Gervigreind Borðtennisvélmenni keppti við atvinnumann „Þetta er ár gervigreindarfulltrúanna“ Nýtt kerfi Anthropic afhjúpar veikleika Mál þýskrar sjónvarpsstjörnu veldur usla Gervigreindin verði „ráðin“ í venjuleg störf » Fleiri tengdar fréttir Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Stjarnan komin í 2:0 eftir lygilegan sigur Þrjú hundruð krítískir veikleikar Risatap í lokaleiknum og Kristófer og félagar fallnir „Alltaf gleði þegar maður skorar svona seint" Sérstök íslensk mynd fer á safn í Belgíu Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð Sumar undanþágur tímabundnar en aðrar varanlegar Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Endurræsing hjá Norðuráli gengið vel Mest lesið Í gær Í vikunni Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Vendinga að vænta í veðrinu Sakar formanninn um leyndarhyggju Vendinga að vænta í veðrinu Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Innkalla hakk vegna gruns um salmonellu Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Hafa hótað og áreitt starfsfólk Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Nýjast á mbl.is » Stjarnan komin í 2:0 eftir lygilegan sigur Þrjú hundruð krítískir veikleikar Risatap í lokaleiknum og Kristófer og félagar fallnir „Alltaf gleði þegar maður skorar svona seint" Sérstök íslensk mynd fer á safn í Belgíu Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðild geti styrkt öryggi Íslands í víðum skilningi Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Sumar undanþágur tímabundnar en aðrar varanlegar Hjón á áttræðisaldri drepin í drónaárás Mest lesið Í gær Í vikunni Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Vendinga að vænta í veðrinu Sakar formanninn um leyndarhyggju Vendinga að vænta í veðrinu Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Innkalla hakk vegna gruns um salmonellu Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Hafa hótað og áreitt starfsfólk Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin

Share this article