Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 33 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Trump fluttur burt í skyndi þegar skothvellir heyrðust Brynja Dögg Friðriksdóttir Donald Trump og eiginkona hans Melania á kvöldverði blaðamanna fyrr í kvöld. EPA / YURI GRIPAS / POOL Donald Trump Bandaríkjaforseti var fluttur burt í skyndi eftir að skot heyrðust í kvöldverði blaðamanna í Hvíta húsinu í Washington í kvöld. Samkvæmt vitnum og fréttamönnum AFP fréttaveitunnar heyrðust skothvellir á kvöldverðinum og gestir skýldu sér undir borðum. Öryggisverðir fluttu Bandaríkjaforseta og aðra háttsetta gesti kvöldverðarins burt hver á eftir öðrum. Fjölmennt lið lögreglu er á vettvangi og þyrlur fljúga yfir Washington Hilton hótelinu þar sem kvöldverðurinn var haldinn. Samkvæmt fréttaveitunni AFP er grunaður árásarmaður í varðhaldi. Þetta er í fyrsta sinn sem Trump þiggur boð í árlegan kvöldverð blaðamanna Hvíta hússins. Fyrir 50 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Kína Útflutningur á sólarorkubúnaði tvöfaldaðist í mars Brynja Dögg Friðriksdóttir Fljótandi sólarorkuver á Cirata-lóni á Vestur-Jövu í Indónesíu. Orkuverið, sem samanstendur af 13 sólarorkueyjum, er stærsta fljótandi sólarorkuverið í Suðaustur-Asíu. Myndin tengist fréttinni óbeint. EPA / MAST IRHAM Kína flutti út tvöfalt meira af sólarorkubúnaði í mars en í febrúar. Norska ríkisútvarpið NRK hefur eftir Climate Home News að útflutningur marsmánaðar hafi verið 49% meiri en í fyrri metmánuði, sem var í ágúst á síðasta ári. Þriðjungur útflutningsins á sólarorkubúnaði fór til landa í Afríku og Asíu. Búnaðurinn nægir til að framleiða 68 gígavött af rafmagni sem er jafn mikið og heildarframleiðsla sólarorku á Spáni. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Brynja Dögg Friðriksdóttir Bakkakot. Kveikur / Ingvar Haukur Guðmundsson Þóra Elísabet Bernódusdóttir, fyrrverandi húsfreyja á fósturheimilinu Bakkakoti, lést á dvalarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli 18. apríl sl. Greint var frá andláti hennar í Morgunblaðinu í dag. Fjallað var um aðstæður á Bakkakoti í fréttaskýringarþættinum Kveik fyrr á þessu ári. Í þættinum lýstu nokkrir menn sem dvöldu á Bakkakoti sem börn harðræði af hendi Þóru í Bakkakoti. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Linnulausar árásir á Dnipro Átta voru drepnir í miklum árásum Rússa á borgina Dnipro í Úkraínu. 49 særðust í árásunum sem eru þær mestu sem hafa verið gerðar á borgina. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Flautukarfa í framlengingu og Stjarnan með pálmann í höndunum Stjarnan og Tindastóll mættust öðru sinni í undanúrslitum Bónusdeildar karla í körfubolta í kvöld. Tindastóll leiddi með 19 stigum í hálfleik en háspenna var í fjórða leikhluta og úrslitin réðust í framlengingu. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísrael gerir loftárásir í suðurhluta Líbanons Mist Þormóðsdóttir Grönvold Ísraelsher gerði loftárásir á að minnsta kosti fjóra staði í suðurhluta Líbanons í dag. Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels fyrirskipaði árásir fyrr í dag í kjölfar meintra brota á vopnahléi af hálfu Hezbollah-samtakanna. Samkvæmt fréttaveitu AFP greina líbanskir ríkisfjölmiðlar frá því að árásir hafi verið gerðar á bæi í héruðunum Bint Jbeil, Tyre og Nabatieh. Í yfirlýsingu segir Ísraelsher skotmörkin hafa verið hernaðarinnviði í Hezbollah í suðurhluta landsins. Þar segir jafnframt að herinn hyggist halda aðgerðum sínum áfram. EPA / ILIA YEFIMOVICH / POOL Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Matur „Treystið nefinu og leyfið bragðlaukunum að leiða ykkur áfram“ Alþjóðlega diskósúpudeginum var fagnað á Garðatorgi í Garðabæ í dag. Deginum er ætlað að vekja athygli á matarsóun á bragðgóðan og skemmtilegan hátt. Um þrjátíu kíló af mat sem átti að henda fóru í súpugerðina. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Palestína Kjósendur í Palestínu vonast eftir breytingum Kjósendur sem kusu í sveitarstjórnarkosningum í Palestínu í dag vonuðust eftir breytingum. Kjörstöðum var lokað klukkan fjögur að íslenskum tíma og kjörsókn jókst eftir hádegi. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hönnun Framleiða hljóðdempandi veggpanela úr endurnýttu textílefni Afgangs textílefni fær nýtt hlutverk hjá fyrirtækinu Flöff. Textíllinn er endurunninn í nýjan efnivið og fyrsta varan er væntanleg á markað. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vinnumarkaður Ofbeldi gagnvart ríkisstarfsmönnum algengt vandamál Formaður BSRB segir marga opinbera starfsmenn mæta aðgerða- og úrræðaleysi þegar þeir tilkynna um ofbeldi og áreitni í starfi. Mál starfsmanna Matvælastofnunar sé grafalvarlegt og stjórnvöld þurfi að taka málið föstum tökum. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Mikilvægur sigur Arsenal sem er aftur á toppnum Arsenal tók á móti Newcastle í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta í dag. Arsenal vann þar mikilvægan 1-0 sigur því liðið er sem stendur í harðri baráttu við Manchester City um Englandsmeistaratitilinn. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Miðausturlönd Reyna áfram að liðka fyrir friðarviðræðum Brynjólfur Þór Guðmundsson Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, segir að ríkisstjórn sín sé staðráðin í að halda áfram að reyna að miðla málum milli Írana og Bandaríkjamanna. Í dag var ljóst að ekkert yrði af fyrirhuguðum fundahöldum með erindrekum ríkisstjórnar Bandaríkjanna og Írans. Utanríkisráðherra Írans hélt aftur heim eftir fund með pakistönskum ráðamönnum og Bandaríkjaforseti hætti við að senda sína erindreka til Pakistans. Sharif sagðist í dag hafa rætt við Masoud Pezeshkian, forseta Írans, og ítrekað vilja sinn til að liðka fyrir friði. Shehbaz Sharif tók á móti Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, í dag. AP/Pakistan Prime Minister Office / Uncredited Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Orban hættir á þingi Viktor Orban ætlar að hætta á þingi og einbeita sér að því að endurskipuleggja stjórnmálaflokk sinn, Fidesz, á landsvísu. Orban og Fidesz-flokkurinn töpuðu stórt í þingkosningunum í Ungverjalandi fyrr í mánuðinum. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti City fer í úrslit bikarsins Anna Sigrún Davíðsdóttir Manchester City og Southampton mættust í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í dag. Það var djúpt á mörkum í leiknum en þegar þau komu þá komu þau á færibandi. Finn Azaz kom Southampton yfir á 79. mínútu. Það kveikti í City og Jérémy Doku jafnaði metinn þremur mínútum síðar, 1-1. Fimm mínútum eftir það átti hann svo sendingu á Nico González sem kom City yfir, tryggði þeim 2-1 sigur og sæti í úrslitaleiknum. Chelsea og Leeds eigast við í hinum undanúrslitaleiknum sem fer fram á morgun. Nico Gonzalez og Matheus Nunes fagna sigurmarkinu. EPA / VINCE MIGNOTT Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Skjálfti upp á 3,2 í Bárðarbungu Brynjólfur Þór Guðmundsson Jarðskjálfti sem var 3,2 að stærð varð í Bárðarbungu klukkan 14:34 í dag. Nokkuð algengt er að jörð skjálfi í Bárðarbungu. Síðasti skjálfti yfir 3 að stærð varð fyrir tæplega fjórum vikum, 31. mars. Hann var öllu stærri en skjálftinn í dag, 3,8 að stærð. Bárðarbunga. Safnmynd. RÚV / Einar Rafnsson Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Eyjakonur með góða innkomu í úrvalsdeild Þrír leikir voru á dagskrá Bestu deildar kvenna í dag. Báðir nýliðar deildarinnar mættu til leiks og Eyjakonur byrjuðu vel með sigri í miklum markaleik á móti 4-3. Valskonur höfðu betur gegn hinum nýliðum deildarinnar í Grindavík/Njarðvík, 2-1. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Allt jafnt hjá Glódísi og félögum í einvíginu við Barcelona Bayern München og Barcelona mættust í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í dag. Glódís Perla Viggósdóttir var á sínum stað í vörn Bayern. Liðin skildu jöfn 1-1 og því er úrslitaleikur í vændum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Heillaðist af landinu og lærði íslensku upp á eigin spýtur Ungur maður frá Bandaríkjunum kenndi sér íslensku sjálfur með því að lesa íslenska fréttamiðla, Wikipedia og Vísindavefinn. Hann hefur þróað smáforrit sem tengir tungumálaáhugafólk saman. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Sara Sif læsti markinu og oddaleikur í vændum Anna Sigrún Davíðsdóttir Haukar tóku á móti ÍBV í fjórða leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handbolta. Haukar unnu 26-23 og því fer viðureignin í oddaleik sem fram fer í Vestmannaeyjum á þriðjudag. Mikið jafnræði var meðal liðanna en Haukar leiddu með einu í hálfleik, 11-10. Haukakonur unnu upp forskot um miðjan síðari hálfleik og þrjú mörk skildu liðin að þegar stundarfjórðungur var eftir, 19-16. Hafnfirðingar héldu þeim mun allt til loka og fögnuðu loks þriggja marka sigri, 26-23. Sara Sif Helgadóttir gerði gæfumuninn í dag þvi varði 21 skot í marki Hauka og endaði með 48% markvörslu. Sara Sif átti stórleik í dag. RÚV / Mummi Lú Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Meiri andstaða við borgarlínu fjarri miðborginni Marktækur munur er á stuðningi við borgarlínuna eftir hverfum í Reykjavík. Því lengra frá miðborginni, því meiri er andstaða íbúa samkvæmt nýrri rannsókn. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Örkuðu yfir Öxi og krefjast samgöngubóta Stelpurnar í 10. bekk á Djúpavogi örkuðu yfir fjallveginn um Öxi í dag og kröfðust samgöngubóta til Egilsstaða. Þær ætla í Menntaskólann á Egilsstöðum næsta haust og líst illa á að keyra holóttann veginn þegar þær fá bílpróf. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Liverpool upp í fjórða Fimm leikir eru á dagskrá ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta í dag. Fjórum er lokið og Liverpool er nú í fjórða sæti eftir sigur á Crystal Palace. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Malí Sprengingar og skotríð dynja á höfuðborg Malí Átök hafa brotist út í Bamako, höfuðborg Malí. Talið er árásirnar séu þær umfangsmestu af hálfu vígahópa jíhadista í fjölda ára. Afríkusambandið hefur fordæmt árásirnar. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Ekkert verður af fundahöldum Kushners og Witkoffs með Írönum Bandaríkjaforseti hætti í dag við að senda tvo erindreka sína til Pakistans til viðræðna við Íran