- What: London Marathon results released
- Impact: Athletes and sports community
Aðstæður virðast hafa verið frábærar í Lundúnarmaraþoninu sem fram fór í dag. Metfjöldi þátttakenda hljóp í dag og mettímar voru settir. Keníumaðurinn Sabastian Sawe kom fyrstur í mark í karlaflokki og það á sögulega góðum tíma, 1 klukkutíma, 59 mínútum og 30 sekúndum, sem er meira en mínútu bæting á heimsmeti landa hans, Kelvin Kiptum. Sawe er á sama tíma sá fyrsti til að hlaupa maraþon í keppnisaðstæðum á undir tveimur klukkutímum. Sá sem kom annar í mark í London í dag, Yomif Kejelcha frá Eþíópíu, gerði það raunar líka því hann hljóp á 1:59:41. Í kvennaflokki bætti hin eþíópíska Tigst Assefa eigið heimsmet en hún kom í mark á 2:15:41 eftir spennandi lokasprett við Hellen Obiri og Joyciline Jepkosgei. Heimsmetin í kvennaflokki eru raunar tvö, þau sem hlaupin hafa verið í sameiginlegum keppnum og svo þar sem aðeins konur hafa verið í brautinni. Met Assefa í dag er í seinni flokknum.