Innlent | mbl | 26.4.2026 | 13:44 Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Eins og sjá má fá hverfi höfuðborgarsvæðisins misgóða einkunn. Skjáskot/gskor.is Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Nýr vefur er kominn í loftið þar sem hægt er að sjá hversu auðvelt er að sinna daglegum erindum fótgangandi frá þeim fasteignum sem eru til sölu á höfuðborgarsvæðinu. Viðar Hrafnkelsson, stærðfræðingur sem starfar við hugbúnaðarþróun, ber ábyrgð á verkefninu en vefurinn ber nafnið gskor.is . Viðar segir í samtali við mbl.is að með vefnum nái hann að samtvinna áhuga sinn á stærðfræði, fasteignamarkaðnum, borgarskipulagi og samgöngum. Taldi þörf á slíkri vefsíðu Viðar taldi þörf á slíkri vefsíðu fyrir fólk sem væri í fasteignaleit, enda gæti verið erfitt að gera sér grein fyrir því hvaða þjónusta væri í nærumhverfinu. „Þetta gengur út á það að fólk geti séð á síðunni hversu auðvelt er að gera dagleg erindi fótgangandi frá hvaða heimili sem er. Þegar fólk er að leita sér að fasteign þá getur það núna leitað eftir því hvaða þjónusta er nálægt. Það er eitthvað sem er ekki til í neinum af þessum fasteignaleitum, það er hugmyndin með þessu.“ Allar eignir sem eru til sölu hljóta því ákveðna einkunn á síðunni eftir því hversu langt þarf að ganga í þjónustu. „Svo er hægt að skoða kortið. Það er hægt að vera með ýmsar síur á þessu og sía út hvort það sé kaffihús nálægt, leikskóli eða grunnskóli eða eitthvað þannig. Fólk hefur mismunandi þarfir,“ segir Viðar. Breiðholt er fjölmennasta hverfi landsins og kemur nokkuð vel út samanborið við önnur úthverfi. mbl.is/Sigurður Bogi Breiðholtið meðal fremstu úthverfa Eðli máls samkvæmt koma eignir betur út í skorinu eftir því sem þær eru meira miðsvæðis. Ákveðin úthverfi koma þó betur út í samanburði við önnur samkvæmt vefsíðunni og ber þar meðal annars að nefna Breiðholtið, þar sem stutt virðist vera í alla þjónustu frá öllum hlutum hverfisins. „Breiðholtið og Kópavogur koma vel út. Svo eru líka miðbær Hafnarfjarðar og miðbær Garðabæjar að koma vel út. Það þarf samt að hafa í huga að þetta skor miðar við alla þjónustu og það eru ekki allir sem þurfa kaffihús nálægt sér en þurfa kannski grunnskóla og sundlaug, þá er bara hægt að sía það út,“ segir Viðar. Hverfi sem fá hvað versta skorið á síðunni eru meðal annars Urriðaholtið í Garðabænum, Skerjafjörðurinn í Reykjavík, Staðahverfið í Grafarvogi, Leirvogstunga í Mosfellsbæ, Arnarnesið í Garðabæ og Álftanesið. Eignir í Urriðaholti fá ekki gott skor á síðunni. mbl.is/Sigurður Bogi Mun ná til alls landsins Vefsíðan er nýlega komin í loftið og er enn í þróun. Viðar sér fram á að bæta ýmsu við síðuna innan tíðar. „Ég er búinn að vera með þetta verkefni í maganum í mörg ár en ákvað að gera þetta tilbúið núna. Það sem ég þarf að gera er að fara betur yfir gögnin til að tryggja að þau séu öll rétt. Áætlunin er að láta vefsíðuna taka til alls landsins, ég mun þróa þetta eitthvað meira.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Óvenjulegur skjálfti reið yfir Noreg Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Stærstu rafíþróttalið ársins Stórleikjakonan framlengdi í London Chelsea-Leeds kl. 14:00, bein lýsing Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Skotárás á hátíðarkvöldverði: Það sem er vitað Þrjú hundruð krítískir veikleikar Mest lesið Í gær Í vikunni Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Verslanirnar vilja fá íslenskar gúrkur Viðsnúningur eftir sársaukafullar aðgerðir Ég tala íslensku! X26: Reyna að nota Starlink-búnað í skólabílnum Þrjú hundruð krítískir veikleikar Einn fær 2,5 milljónir: Fjórfaldur pottur næst Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Nýjast á mbl.is » Óvenjulegur skjálfti reið yfir Noreg Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Stærstu rafíþróttalið ársins Stórleikjakonan framlengdi í London Chelsea-Leeds kl. 14:00, bein lýsing Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ætlaði sér að ráðast á forsetann „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Þrjú hundruð krítískir veikleikar Mest lesið Í gær Í vikunni Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Verslanirnar vilja fá íslenskar gúrkur Viðsnúningur eftir sársaukafullar aðgerðir Ég tala íslensku! X26: Reyna að nota Starlink-búnað í skólabílnum Þrjú hundruð krítískir veikleikar Einn fær 2,5 milljónir: Fjórfaldur pottur næst Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“