Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið

Read Full Article →

Innlent | mbl | 26.4.2026 | 18:38 Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Guðmundur Árnason lýsir jarðskjálfta morgunsins og eftirskjálftum í samfélaginu í samtali við mbl.is. Samsett mynd/mbl.is/Golli/Ljósmynd/Guðmundur Árnason Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Guðmundur Árnason, sem búsettur er í Noregi í grennd við Ósló, hélt að risaþota væri að lenda fyrir utan heimili sitt þegar jarðskjálfti af stærðinni 3,8 reið yfir sunnanverðan Noreg. Skjálftanum fylgdu heljardrunur og brestir í þökum víða, en engar fregnir hafa borist af skaða eða tjóni vegna hans – að undanskildum þeim sálarskaða sem skelkaðir Norðmenn þurftu að þola. Í samtali við mbl.is segir Guðmundur mörgum Norðmönnum hafa brugðið mikið við skjálftann, enda sé þetta stærsti jarðskjálfti sem riðið hefur yfir austanverðan Noreg í 22 ár og þeir því óvanir slíkum skjálftagangi. Sem Íslendingur hefur Guðmundur þó fundið fyrir þó nokkrum sterkari skjálftum heima á Fróni. Frétt af mbl.is Óvenjulegur skjálfti reið yfir Noreg Brestir í þakinu og þotudrunur Guðmundur var staddur heima fyrir og hafði nýsinnt dýrum sínum og hellt upp á kaffi þegar jarðskjálftinn varð klukkan 9:24 í morgun að staðartíma. „Ég bý í Kongsvingen, í um 40 mínútna fjarlægð frá skjálftaupptökunum, og ég hélt fyrst að það væri þota að fljúga yfir húsið, það komu svo rosaleg læti og rosalegar drunur, og svo hristist allt í kjölfarið.“ Drunurnar segir hann að hafi að mestu komið að utan, en læti og brestir hafi einnig heyrst í þakinu heima fyrir. Guðmundur býr í um 40 mínútna akstursfjarlægð frá upptökum skjálftans. Ljósmynd/Guðmundur Árnason Skjálftans gætti langt inn í Svíþjóð Fyrstu tölur sem Guðmundur sá bentu til þess að skjálftinn hefði verið 4,4 stig á Richter-kvarðanum að stærð, en samkvæmt nýjustu tölum var hann um 3,8 stig. Hann átti sér stað nálægt landamærum Noregs og Svíþjóðar og segir Guðmundur skjálftann hafa fundist langt inn í Svíþjóð, miðað við norskan fréttaflutning af málinu. „Hann var svolítið langdrægur þessi.“ Einn eftirskjálfti í stærri kantinum mældist klukkan 11:24, en Guðmundur segist ekki hafa orðið var við hann. Á myndinni má sjá staðsetningar skjálftanna tveggja. Rauði depillinn táknar hinn óvenjulega skjálfta, en sá græni eftirskjálftann sem varð klukkan 11:24. Kort/NORSAR Háværari en þeir íslensku Guðmundur segir Norðmenn ekki vana að upplifa skjálfta af þessari stærðargráðu, en að engar fregnir hafi borist af tjóni. „Það má segja að þetta hafi verið stórskjálfti hér í Noregi, þótt við upplifum dálítið stærri skjálfta en þetta heima á Íslandi. Ég hef ekki heyrt af neinu sem skemmdist, samt, nema nokkrir blómapottar hjá gamalli konu.“ Hann bætir því við að margir Norðmenn hafi verið að upplifa jarðskjálfta í fyrsta sinn í morgun. „Maður hefur heyrt að það voru margir slegnir yfir þessu. Þetta er stærsti skjálftinn sem hefur komið hérna í að minnsta kosti fimmtán ár, en það hafa samt komið einhverjir smáskjálftar sem fólk er ekki vart við.“ Hann segir skjálftann ekki alls ólíkan þeim skjálftum sem hann hefur upplifað á Íslandi, að undanskildum hávaðanum. „Ég man ekki eftir að hafa heyrt svona mikil læti á undan þeim skjálftum, þessar drunur í morgun voru alveg rosalegar. Eins og það væri risaþota að lenda fyrir utan húsið.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Valur - Grindavík, staðan er 0:0 Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Sveinn Aron bjargaði stigi á Ítalíu Stjarnan knúði fram oddaleik Karl heimsækir Bandaríkin þrátt fyrir árás Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ætlaði sér að ráðast á forsetann Leiðtogar heimsins „í áfalli“ Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Mest lesið Í gær Í vikunni Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Ég tala íslensku! Samfylkingin á flugi og meirihlutinn fallinn „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Viðsnúningur eftir sársaukafullar aðgerðir Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Hiti gæti náð allt að 20 stigum Nýjast á mbl.is » Valur - Grindavík, staðan er 0:0 Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Sveinn Aron bjargaði stigi á Ítalíu Stjarnan knúði fram oddaleik Karl heimsækir Bandaríkin þrátt fyrir árás Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Sumar undanþágur tímabundnar en aðrar varanlegar Fjarskipti versnað mikið eftir brotthvarf 2G og 3G Undanþágur aðallega tímabundnar Mest lesið Í gær Í vikunni Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Ég tala íslensku! Samfylkingin á flugi og meirihlutinn fallinn „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Viðsnúningur eftir sársaukafullar aðgerðir Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Skemmdarvargar lögðu salerni í rúst Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Miðflokksfáni deilir fánastöng með hinsegin fána Útlendingar tæp 70% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Hiti gæti náð allt að 20 stigum

Share this article