- What: Search for a person in need at Háafoss
- Impact: Emergency response teams are on the scene
Allt tiltækt viðbragðslið hefur verið kallað til vegna manns í neyð niðri í gilinu við Háafoss í Þjórsárdal á Suðurlandi. Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við fréttastofu. Hann segir útkallið á hæsta forgangi og að bjargir séu á leiðinni á staðinn, þar á meðal straumvatnsbjörgunarsveitarhópar frá höfuðborgarsvæðinu og björgunarsveitir. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfestir að þyrla gæslunnar sé á leið að Háafossi. Lögreglan á Suðurlandi getur ekki gefið frekari upplýsingar að svo stöddu. Fréttin verður uppfærð.