Flóttamenn frá Súdan bíða eftir því að sækja vatn í Farchana-flóttamannabúðunum í Austur-Tjad í apríl 2024. Mikill vatnsskortur er á þessu svæði, sem bitnar bæði á íbúum þess og flóttamönnum sem flúið hafa stríðið í Súdan yfir til Tjad. Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / Stringer Að minnsta kosti 42 voru drepnir í átökum milli þjóðarbrota í Austur-Tjad í gær. Fréttaveitan AFP hefur eftir ónafngreindum embættismanni í ríkisstjórn landsins að átök hefðu brotist út milli hópa fólks í Wadi Fira-héraðinu vegna vatnsbrunns. Átök hafa ítrekað brotist út milli bænda og hirðingja í Austur-Tjad. Spennan hefur aukist á þessu svæði eftir að mikill fjöldi flóttamanna flúði stríðsátök í Súdan yfir til Tjad. Yfir 1.000 manns hafa verið drepnir og um 2.000 hafa slasast í átökum um ræktað land og beitilönd á árunum 2021-2024, samkvæmt frjálsu félagasamtökunum International Crisis Group.
This article describes a physical security and geopolitical threat, not a software vulnerability, where competition over scarce water resources has led to violent clashes between herders and farmers in eastern Chad. The conflict has been exacerbated by the influx of refugees fleeing the war in Sudan, resulting in significant casualties. The article does not contain information related to CVSS scores, software versions, or technical patches.