Innlent | mbl | 11.2.2026 | 13:22 Ríflega tvöfalt fleiri börn á BUGL vegna átröskunar en 2019 Tilvísunum í átröskunarteymi Barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL) fjölgaði verulega á síðasta ári og línuleg aukning hefur orðið í tilvikum frá árinu 2019. Sérfræðingar segja þróunina alvarlega og hvetja foreldra og forráðamenn til að vera vakandi fyrir viðvörunarmerkjum. Þetta kemur fram í grein Karenar Daðadóttur, sálfræðings og teymisstjóra í átröskunarteymi BUGL, í nýjasta fréttabréfi Landspítalans , Spítalapúlsinum. 56 börn ný tilfelli Samkvæmt nýjustu tölum bárust 56 tilvísanir árið 2025, samanborið við 40 árið áður og 34 árið 2023. Í fyrsta skipti frá því tölur voru teknar saman árið 2019 er meira en eitt tilvik á viku tilkynnt. Meira en tvöföldun hefur orðið í tilvikum á síðustu sex árum en árið 2019 voru tilvikin 24. „Þróunin er alvarleg og við viljum hvetja forráðamenn til að vera vakandi fyrir breytingum á hegðun og líðan barna sinna,“ segir Karen í greininni. Kanni breytta hegðun í kringum mat Í greininni bendir hún á að sérstaklega sé mikilvægt að fylgjast með breyttri hegðun í kringum mat og aukinni áherslu á líkama og útlit. „Neikvætt tal um líkama, þyngd og lögun hjá fullorðnum getur auðveldlega haft áhrif á viðhorf og sjálfsmynd barna og unglinga,“ segir Karen. Karen Daðadóttir. Ljósmynd/Aðsend Foreldrar eru einnig hvattir til að taka eftir breytingum á skapi og félagslegri virkni. Aukin einangrun, pirringur, depurð eða kvíði geta verið merki um að eitthvað sé að, sem og fullkomnunarárátta og óraunhæfar kröfur sem börn gera til sjálfra sín. Áráttukennd hreyfing Þá getur óhófleg eða áráttukennd hreyfing verið viðvörunarmerki. „Ef barn upplifir vanlíðan eða kvíða þegar það kemst ekki í líkamsrækt, eða notar hreyfingu til að bæta upp fyrir mat, er ástæða til að skoða málið nánar,“ útskýrir hún. Líkamleg einkenni geta einnig bent til vanda, svo sem þreyta, svimi, kulvísi, höfuðverkir, magaverkir eða óreglulegar hægðir. Hægur vöxtur, seinkun á kynþroska og tíðateppa hjá stúlkum eru einnig meðal þeirra viðvörunarmerkja sem foreldrar ættu að þekkja. Alexandra Helga lokar fyrirtækinu sínu Myndskeið: Eyjamenn mjög áberandi Vill að Jamaíka læri af íslensku kerfi Stebbi Jak ákærður en neitar sök Sjálfstæðismenn í Eyjum halda prófkjör ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Skýr arðsemismarkmið mikilvæg Ríflega tvöfalt fleiri börn á BUGL vegna átröskunar Hagsmunavarsla eflir sendiráðið Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Sindri mættur fyrir dóm Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson Alexandra Helga lokar fyrirtækinu sínu Myndskeið: Eyjamenn mjög áberandi Vill að Jamaíka læri af íslensku kerfi Stebbi Jak ákærður en neitar sök Sjálfstæðismenn í Eyjum halda prófkjör ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Mestu vonbrigðin í forstjóratíð Runólfs Trump virðist hafa vitað meira Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skýr arðsemismarkmið mikilvæg Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Sindri mættur fyrir dóm Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson