Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ný kynslóð lyfjaskammtara á markað

Read Full Article →

Öryggismiðstöðin er þessa dagana að kynna nýja kynslóð rafrænna lyfjaskammtara inn á íslenskan markað. Lyfjaskammtarinn hefur þegar verið tekinn í notkun í Skandínavíu og var meðal annars nýlega valinn til notkunar fyrir íbúa Oslóar. Notkun rafrænna lyfjaskammtara hefur aukist jafnt og þétt frá því þeir komu fyrst á íslenskan markað fyrir um fimm árum. „Tækin hafa sannað gildi sitt bæði fyrir heilbrigðiskerfið og notendur. Fyrir heilbrigðiskerfið hafa þau meðal annars minnkað umtalsvert þörf á innlitum heimaþjónustu, á sama tíma og tæknin eykur öryggi, lífsgæði og bætir meðferðarheldni hjá notendum," segir Dilja Guðmundardóttir, sérfræðingur í heilbrigðistækni hjá Öryggismiðstöðinni. Hún segir lyfjaskammtarann hannaðan með einfaldleika að leiðarljósi. Hann sé léttur, meðfærilegur, allar nauðsynlegar leiðbeiningar aðgengilegar á stórum skjá á tækinu og það taki innan við mínútu að fylla á hann fyrirframpökkuðum lyfjarúllum. „Þessi nýja kynslóð lyfjaskammtara hefur fengið mjög góðar viðtökur bæði hérlendis og á Norðurlöndum. Hann er þegar kominn í notkun í Noregi og Svíþjóð, þar sem hann er að reynast mjög vel, og við erum nú þegar byrjuð að kynna hann víða um land," segir Diljá. Hún segir að með þessari nýjung stígi Öryggismiðstöðin mikilvægt skref í átt að auknu öryggi, betri möguleikum á sjálfstæðri búsetu eldra fólks í heimahúsum og bættri þjónustu í lyfjagjöf.

Share this article