Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Höfnin er lífæð bæjarfélagsins

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.4.2026 | 18:30 Höfnin er lífæð bæjarfélagsins Vel fer á með mótherjunum Guðfinni Jóhanni Ragnarssyni og Kristjáni Jóni Guðmundssyni. Morgunblaðið/Kristófer Liljar Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Samantekt 18:30 Frétt: Höfnin er lífæð bæjarfélagsins 17:20 Frétt: „Einkennilegt framlag í kosningabaráttuna“ 16:30 Frétt: X26: „Skuldir eru ekki alltaf af hinu slæma“ 16:08 „Ef það eru byggð hús, þá kemur fólk og býr í þeim“ Höfnin í Bolungarvík, húsnæðisuppbygging og ábyrg fjármálastjórn eru helstu málefnin sem ber á góma í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í samtali Morgunblaðsins við oddvita framboðanna tveggja sem bjóða fram í bænum. Þeir Guðfinnur Ragnar Jóhansson, oddviti K-lista Máttar meyja og manna, sem fer með meirihluta í sveitarstjórn á yfirstandandi kjörtímabili, og Kristján Jón Guðmundsson, oddviti O-lista Betri Bolungarvíkur, eru sammála um margt sem snýr að grunninnviðum og framtíð bæjarins, þótt þeir leggi ólíka áherslu á rekstur og hlutverk sveitarfélagsins. Bolungarvík hefur um langt skeið byggst upp í kringum sjósókn og hafnarstarfsemi, og það kemur skýrt fram í máli beggja frambjóðenda að höfnin skipti lykilmáli fyrir framtíð svæðisins. Guðfinnur segir eitt stærsta verkefni síðasta kjörtímabils hafa verið endurnýjun vatnsveitunnar, þar með talið ný vatnshreinsistöð og vatnstankur, en bendir á að uppbygging hafnarinnar sé það verkefni sem skipti bæinn hvað mestu til lengri tíma litið. „Það skiptir gífurlega miklu máli fyrir Bolungarvík að við séum með sterka höfn,“ segir hann. Standa og falla með höfninni Kristján tekur í sama streng og segir Bolungarvík standa og falla með höfninni. Hann bendir á að betri hafnaraðstaða skapi ekki aðeins meira svigrúm fyrir núverandi atvinnustarfsemi heldur geti hún einnig laðað að ný fyrirtæki og aukið tekjur sveitarfélagsins. „Bolungarvík stendur og fellur með höfninni,“ segir hann og bætir við að hafnarframkvæmdir geti skapað fleiri störf og tryggt meiri umsvif. Fram kemur að þörf sé á að breikka og dýpka innsiglinguna, fjarlægja klöpp sem stendur í vegi fyrir betri aðkomu og byggja nýjan grjótgarð. Áætlanir gera ráð fyrir að höfninni verði skipt í fiskihöfn annars vegar og laxahöfn hins vegar. Kostnaðurinn er mikill, áætlaður þrír til fjórir milljarðar króna, og hlutur sveitarfélagsins gæti numið 700 til 1000 milljónum. Eitt af því sem hefur gjörbreytt stöðunni í Bolungarvík er nýtt og afar umsvifamikið laxasláturhús sem Arctic Fish tók í gagnið árið 2023. Nýtt hverfi og meiri fjölbreytni Húsnæðismálin eru annað stórt kosningamál í Bolungarvík. Guðfinnur bendir á að nýtt íbúðahverfi sé nú að rísa og stefnt sé að því að fyrstu húsbyggingar geti hafist í sumar. Í hverfinu verði lóðir fyrir einbýli, parhús og fjölbýli. Þá hafi sveitarfélagið gert samning við leigufélagið Brák um byggingu sex íbúða með stofnfjárframlagi frá bænum, í því skyni að liðka fyrir uppbyggingu eigumarkaðar. Kristján segir skort ekki endilega birtast í því sem sjáist á fasteignaauglýsingum hverju sinni, heldur fremur í því að framboðið sé of einsleitt. Það vanti húsnæði sem henti bæði ungu fólki að hefja búskap og eldra fólki sem vilji minnka við sig. „Ef það eru byggð hús, þá kemur fólk og býr í þeim,“ segir hann og lýsir yfir bjartsýni um að uppbygging laði að nýja íbúa. Atvinnu sé að hafa á svæðinu og húsnæðið sé enn ódýrara en á suðvesturhorninu. Það feli í sér tækifæri fyrir fólk til að koma undir sig fótunum. Fjárhagsstaða sveitarfélagsins er óhjákvæmilega fyrirferðarmikil í umræðunni. Kristján leggur ríka áherslu á að horft sé í hverja krónu og bendir á að 53% af tekjum sveitarfélagsins fari í laun og launatengd gjöld. Að hans mati þarf að fara markvisst yfir reksturinn og tryggja að útgjöld skili raunverulegum ávinningi til lengri tíma. „Við þurfum ábyrga fjármálastjórnun,“ segir hann og bætir við að fjárfestingar verði að skapa tekjur til framtíðar. Guðfinnur tekur undir mikilvægi þess að fara vel með fjármuni bæjarbúa en bendir jafnframt á að erfitt sé að ætla bæði að framkvæma mikið og lækka skuldir á sama tíma. Hann segir skuldahlutfall hafa hækkað lítillega á kjörtímabilinu, sem honum þyki miður, en telur jafnframt að skuldir geti verið réttlætanlegar ef þær standi undir uppbyggingu sem skapi verðmæti og tekjur síðar meir. „Skuldir eru ekki alltaf af hinu slæma,“ segir hann. Ólík sýn á hlutverk bæjarins Ferðaþjónusta kemur einnig við sögu. Kristján telur að sveitarfélagið eigi ekki sjálft að standa í rekstri ferðamannastaða á borð við útsýnispallinn á Bolafjalli og Ósvör. Hann vill fremur að einkaaðilar taki við rekstrinum á grundvelli samninga sem tryggi sveitarfélaginu tekjur af hverjum ferðamanni. „Bærinn á að sinna sinni kjarnastarfsemi,“ segir hann. Guðfinnur er opnari fyrir þeirri sýn, en bendir á að útsýnispallurinn hafi skipt Bolungarvík miklu máli sem aðdráttarafl. Hann segir þó að rukkað verði fyrir bílastæði við pallinn til að standa straum af kostnaði við veghald og uppbyggingu svæðisins. Þrátt fyrir mismunandi áherslur eru oddvitarnir sammála um margt. Báðir telja laxeldi skipta miklu fyrir atvinnulíf á Vestfjörðum, báðir vilja efla innviði og báðir hafna því að sameining við Ísafjarðarbæ sé aðkallandi eins og staðan er í dag. Sjálfstæði Bolungarvíkur ráðist fyrst og fremst af því hvort sveitarfélagið geti staðið undir sér fjárhagslega og byggt áfram á þeim styrkleikum sem hafa lengi haldið samfélaginu gangandi. Kristján slær raunar á létta strengi og segist sjá fyrir sér að í framtíðinni verði þrjú sveitarfélög í landinu: „Vestmannaeyjar, Ísland og Bolungarvík.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang 18:30 Höfnin er lífæð bæjarfélagsins Höfnin í Bolungarvík, húsnæðisuppbygging og ábyrg fjármálastjórn eru helstu málefnin sem ber á góma í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í samtali Morgunblaðsins við oddvita framboðanna tveggja sem bjóða fram í bænum Meira 17:20 „Einkennilegt framlag í kosningabaráttuna“ „Garðbæingar athugið að atkvæði á aðra en sjálfstæðismenn í bæjarstjórnarkosningunum er stuðningur við Alþýðubandalagið.“ Meira 16:30 X26: „Skuldir eru ekki alltaf af hinu slæma“ Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 16. maí, en þá verður efnt til kosninga í 62 sveitarfélögum landsins af öllum stærðum og gerðum. Meira 16:08 „Ef það eru byggð hús, þá kemur fólk og býr í þeim“ 14:15 „Óásættanlegt að fólk þurfi að óttast að vera utandyra“ „Góð loftgæði eru hagsmunamál okkar allra en sérstaklega barna, aldraðra og fólks sem glímir við sjúkdóma. Það er óásættanlegt að fólk þurfi að óttast að vera utandyra eða senda börn í skólann vegna loftmengunar.“ Meira Í gær, 22:15 Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Oddviti Miðflokksins í Kópavogi segir gagnrýni dómsmálaráðherra á hugmyndir flokksins er varða heimgreiðslur til foreldra til að brúa bilið frá fæðingarorlofi til leikskóla ekki koma sér á óvart, enda hafi ráðherra áður sett sig upp á móti tillögum Miðflokksins hvað varði forræði foreldra yfir eigin fæðingarorlofi. Meira Í gær, 20:42 Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Bjarki Þorsteinsson, fyrirhugað sveitarstjóraefni beggja framboða til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar, hefur afþakkað boð um að gegna embættinu fyrir hönd Í-listans vegna framgöngu fulltrúa listans gegn oddvita A-listans. Meira í gær Segir hugmyndir um heimgreiðslur vera snákaolíu Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra gagnrýnir harðlega hugmyndir Miðflokksins um auknar heimgreiðslur til foreldra til að brúa bilið frá fæðingarorlofi til leikskóla og talar um snákaolíu í því samhengi. Meira í gær Samfylkingin á flugi og meirihlutinn fallinn Samfylkingin fengi flesta bæjarfulltrúa kjörna á Akureyri í komandi sveitarstjórnarkosningum ef niðurstöður nýrrar könnunar raungerast. Meira í gær Viðsnúningur eftir sársaukafullar aðgerðir Algjör viðsnúningur hefur orðið á rekstri Árborgar en rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins var jákvæð um tæpan einn og hálfan milljarð árið 2025 en áætlanir höfðu gert ráð fyrir 67 milljóna niðurstöðu. Meira 25.4. 25.4. Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærsti flokkurinn í Kópavogi en missir þó fylgi frá því að kosið var fyrir fjórum árum síðan, heldur þó flokkurinn sínum fjórum fulltrúm samkvæmt könnuninni. Meira 25.4. Fjarskipti versnað mikið eftir brotthvarf 2G og 3G Vesturbyggð stendur frammi fyrir sóknarfærum á komandi árum, sem er gjörbreyting frá því sem var frá níunda áratug síðustu aldar og fram á þann síðasta. Sveitarfélagið, sem varð formlega til í núverandi mynd 1 Meira 25.4. Takast á um virkjunarkosti Tvö framboð komu fram í Vesturbyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Ný sýn býður fram á ný en fulltrúar þess mynda meirihluta eftir aukakosningar sem haldnar voru 2024 í kjölfar þess að Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur runnu saman í eitt Meira 24.4. Myndir: Fjölmenni á borgarafundi á Ísafirði Fjölmenni var á borgarafundi Morgunblaðsins á Ísafirði á miðvikdag þar sem fulltrúar allra fimm framboða, sem bjóða fram í sveitarstjórnarkosningum í maí, sátu fyrir svörum. Meira Sýna meira Nýjast á mbl.is » Njarðvík - Grindavík, staðan er 0:0 Niðurbrotinn eftir áfallið Hverju geta 3 tímar á viku breytt? KR - FH, staðan er 4:2 Höfnin er lífæð bæjarfélagsins Umræðan Tækifærið er núna „Um margt að semja“ – eða hvað? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leita að manni við Háafoss Þ

Share this article