Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina

Read Full Article →

Innlent | mbl | 27.4.2026 | 19:45 Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Horft til Vestmannaeyja frá Landeyjahöfn. mbl.is/Eggert Jóhannesson Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Ólíklegt er að hægt verði að sigla frá Landeyjahöfn til Vestmannaeyja um helgina. Dýpkunarframkvæmdir voru stöðvaðar í morgun vegna slæmra skilyrða og er búist við slæmu veðri næstu daga sem torveldar framkvæmdir. Þetta segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, í samtali við mbl.is. Hann segir að stefnt sé að því að hefja framkvæmdir aftur á fimmtudagskvöld eða á föstudag. Dæla þarf sandi úr Landeyjahöfn svo Herjólfur geti siglt í land. Framkvæmdirnar eru háðar veðurskilyrðum en mikill sandur er á svæðinu. Á meðan Herjólfur getur ekki siglt frá Landeyjahöfn er siglt frá Þorlákshöfn. Tæpar þrjár klukkustundir tekur að sigla frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja samanborið við 45 mínútur frá Landeyjahöfn. Búist við mannfjölda í eyjunni Búist er við miklum mannfjölda í Vestmannaeyjum um helgina þegar utanvegahlaupið The Puffin Run verður haldið í níunda sinn á laugardag. Uppselt er í hlaupið þar sem ráðgert er að 1.800 manns taki þátt. Katrín Laufey Axelsdóttir, einn skipuleggjenda Puffin Run, segir í samtali við mbl.is að hlaupahaldarar séu enn vongóðir um að hægt verði að sigla frá Landeyjahöfn um helgina. Hún segir ölduspána líta vel út. Frá Puffin Run fyrir nokkrum árum. Hlaupinu ekki aflýst Hún segir að sama hvað verði verði hlaupinu ekki aflýst. „Við hvetjum þá sem eru harðákveðnir að koma að koma frekar á föstudeginum,“ segir Katrín og bendir á að hægt sé að kaupa miða í Herjólf sem dugar bæði frá Landeyjahöfn og Þorlákshöfn. Fjölmargir hafa bókað sér ferð í Herjólf sama dag og hlaupið fer fram, á laugardag. Katrín segir að ef siglt verður frá Þorlákshöfn muni þeir sem sjá sig ekki fært um að komast á föstudeginum vera boðið að færa hlaupamiðann fram á næsta ár eða fá endurgreitt. „Við gerum okkur grein fyrir því að margir sem bókuðu sig í hlaupið gerðu ráð fyrir að þetta yrði dagsferð,“ segir Katrín. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » FH - Valur, staðan er 12:10 Njarðvík - Grindavík, staðan er 44:31 Man. Utd - Brentford, staðan er 2:0 Tveir landsliðsmenn heiðraðir Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Umræðan Tækifærið er núna „Um margt að semja“ – eða hvað? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Segir fundina með Þorgerði hafa verið gagnslausa Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Mest lesið Í gær Í vikunni Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Maðurinn fannst látinn við Háafoss „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Minnast Íslendingsins í Danmörku Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Ég tala íslensku! Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Sérsveitin kölluð út á Akureyri Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Nýjast á mbl.is » FH - Valur, staðan er 12:10 Njarðvík - Grindavík, staðan er 44:31 Man. Utd - Brentford, staðan er 2:0 Tveir landsliðsmenn heiðraðir Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Umræðan Tækifærið er núna „Um margt að semja“ – eða hvað? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Enginn skjátími fyrir börn undir tveggja ára Þjálfunaraðstaða lögreglu stenst ekki samanburð Daði Már: Kostar um hálfan milljarð Mest lesið Í gær Í vikunni Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Maðurinn fannst látinn við Háafoss „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Minnast Íslendingsins í Danmörku Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Ég tala íslensku! Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Sérsveitin kölluð út á Akureyri Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði

Share this article