Innlent | mbl | 27.4.2026 | 23:00 Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ „Ég upplifi mig með hengingaról og ökklabönd og allt saman,“ sagði Inga. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Skjáskot/Instagram Setja bókamerki Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins, segist telja umræðuna sem skapaðist í kjölfar þess að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra bauð forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar í pítsaboð á miðvikudag hafa verið ómaklega. Síðdegis sama dag var haldinn íbúafundur í Grindavík en Kristrún sá sér ekki fært að mæta. „Ég hef bara í annan tíma ekki ímyndað mér neitt annað eins rugl og upphróp og falsfréttir. Það er eins og maður sé kominn í stofufangelsi,“ sagði Inga um viðbrögðin vegna pítsuveislunnar, í hlaðvarpsviðtali hjá Frosta Logasyni. Mikil umræða skapaðist á samfélagsmiðlum vegna boðsins, sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti einnig. Kristrúnu hafði verið boðið á íbúafund Grindvíkinga en hún tilkynnti á mánudaginn að hún hefði ekki tök á að mæta. Mikil óánægja meðal Grindvíkinga Það kom því flatt upp á marga þegar Þorgerður birti mynd af þeim stöllum þar sem þær gæddu sér á pítsu á miðvikudag. Þó nokkrir Grindvíkingar lýstu því yfir á samfélagsmiðlum í kjölfar myndbirtingarinnar að með þessu væri forsætisráðherra að taka pítsaveislu fram yfir raddir Grindvíkinga. „Ég er orðlaus yfir því hvernig þið ákváðuð að hunsa þetta boð og hendið svo í þessa ömurlegu pizzumynd samanborið við mikilvægi þess að koma grindvísku samfélagi aftur á lappirnar,“ skrifaði einn íbúi Grindavíkur á samfélagsmiðlum. Fleiri lýstu því í sjónvarpsfréttum Sýnar á miðvikudagskvöld að þeir hefðu orðið fyrir miklum vonbrigðum með fjarveru forsætisráðherra. Að sögn aðstoðarmanns Kristrúnar hafði fjarvera Kristrúnar á íbúafundinum ekkert með pítsuveisluna að gera. Hún hafi ekki komist á fundinn vegna persónulegra skuldbindinga á fundartímanum. Frétt af mbl.is Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni „Ég upplifi mig með hengingaról“ Íbúafundurinn í Grindavík hófst klukkan 16.30 og honum lokið tæpum 90 mínútum síðar. Að sögn Ingu hittust hún og Þorgerður heima hjá Kristrúnu upp úr klukkan átta á miðvikudagskvöld. Inga segir að eftir ríkisstjórnarfund á föstudag hafi Kristrún lagt til að formenn ríkisstjórnarflokkanna myndu hittast heima hjá henni þar sem hún væri ein heima og ætlaði að baka pítsu. „Ég fékk að njóta þess að sjá forsætisráðherrann okkar svífa um með bökunarplötuna og sveifla um þessu frábæra deigi,“ sagði Inga þegar hún lýsti því hvernig Kristrún útbjó pítsurnar. Hún segir sér hafa verið allri lokið þegar hún sá umræðuna á samfélagsmiðlum í kjölfar pítsaboðsins. „Ég upplifi mig með hengingaról og ökklabönd og allt saman.“ Frétt af mbl.is Kristrún bauð í pítsupartý Verið að berja forsætisráðherra eins og „köttinn í tunnunni“ Þér finnst, þegar þú tekur eftir þessum viðbrögðum, að það sé illa vegið að Kristrúnu? „Illa vegið? Þetta var svo ósanngjarnt. Það var búið að bjóða henni á þennan fund og hún var bara ekki með tíma akkúrat. Það er eins og hún eigi ekki börn eða neitt. Það er eins og hún sé bara ekki mennsk,“ sagði Inga. „Að móðir eftir langan og strangan vinnudag geti ekki verið með barninu sínu í klukkutíma. Vegna þess að það er ekki bara verið að bjóða þér eitthvað, þótt þú afþakkir boðið ertu bara skömmuð fyrir að mæta ekki. Það er verið að taka forsætisráðherra hérna og berja hana eins og köttinn í tunnunni.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fær inngöngu þrátt fyrir perraskap við yngri iðkendur Kveður við annan tón hjá Trump Stálu 12 tonnum af Kit-Kat súkkulaði Fæddi barn skömmu fyrir lendingu „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Umræðan Tækifærið er núna „Um margt að semja“ – eða hvað? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ólíklegt að siglt verði um helgina: Halda í vonina Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mest lesið Í gær Í vikunni Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Ég tala íslensku! Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Sérsveitin kölluð út á Akureyri Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Nýjast á mbl.is » Fær inngöngu þrátt fyrir perraskap við yngri iðkendur Kveður við annan tón hjá Trump Stálu 12 tonnum af Kit-Kat súkkulaði Fæddi barn skömmu fyrir lendingu „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Umræðan Tækifærið er núna „Um margt að semja“ – eða hvað? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þjálfunaraðstaða lögreglu stenst ekki samanburð Sérfræðingur SVT: Handteknir og drepnir Leita að manni við Háafoss Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Mest lesið Í gær Í vikunni Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Ég tala íslensku! Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Sérsveitin kölluð út á Akureyri Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði